Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 633. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1046  —  633. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um komugjöld aldraðra og öryrkja.

Frá Ögmundi Jónassyni.



     1.      Hvernig hafa komugjöld í heilsugæslunni og til sérfræðinga hækkað hlutfallslega hjá öldruðum og öryrkjum frá því að núverandi ríkisstjórn tók við völdum?
     2.      Á hvern hátt hafa hámarksgreiðslur til þessara hópa breyst hlutfallslega?


Skriflegt svar óskast.