Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 551. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1108 — 551. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Péturs H. Blöndals um meginbreytingar á skattlagningu og áhrif þeirra á tekjur ríkissjóðs.
1. Hvaða meginbreytingar hafa verið gerðar á skattlagningu einstaklinga og lögaðila frá árinu 1990?
Skattkerfið á Íslandi hefur tekið stórfelldum breytingum á því tímabili sem hér um ræðir, þ.e. á tímabilinu 1991–2007, eins og sést best á eftirfarandi yfirliti:
*
Hér er miðað við persónuafslátt, skattleysismörk og virðisaukaskattshlutfall í ársbyrjun 2008.
** Hafa þarf í huga að þegar staðgreiðsla tekjuskatts var tekin upp árið 1988 var frádráttur ýmissa gjalda, þ.m.t. iðgjalda í lífeyrissjóð, sameinaður í einn frádrátt, þ.e. persónuafslátt eins og við þekkjum hann í dag.
*** Fyrir upptöku fjármagnstekjuskatts voru fjármagnstekjur skattlagðar á mjög mismunandi hátt. Þannig voru vaxtatekjur skattfrjálsar á meðan arðgreiðslur voru skattlagðar eins og launatekjur umfram tiltekin skattleysismörk. Með upptöku fjármagnstekjuskatts var skattlagning fjármagnstekna (vaxtatekna, arðs, söluhagnaðar og leigutekna) samræmd.
Ýmsar breytingar hafa einnig verið gerðar á barnabótum og vaxtabótum, einkum í þeim tilgangi að létta undir með tekjulágum og eignalitlum fjölskyldum með börn, jafnframt því að draga sem kostur er úr jaðaráhrifum bótakerfisins.
Þá hafa margvíslegar breytingar átt sér stað á álagningu tolla og vörugjalda á umræddu tímabili til lækkunar og hefur því dregið úr vægi þeirra tekjustofna. Á móti vegur upptaka umhverfisskatta, svo sem úrvinnslu- og spilliefnagjalda sem teljast til vörugjalda.
2. Hvaða áhrif hafa þessar breytingar haft á viðkomandi skattstofna og tekjur ríkissjóðs af þeim?
Í eftirfarandi töflu kemur fram hvernig vægi einstakra tekjustofna hefur verið að breytast á umræddu tímabili sem hlutfall af skatttekjum, sem gefur ákveðna mynd af því hvaða áhrif framangreindar breytingar hafa haft á einstaka tekjustofna ríkissjóðs. Þar kemur einnig fram hvert hlutfall heildarskatttekna ríkissjóðs er af vergri landsframleiðslu 1991 og 2007.
Samspil breytinga á skattheimtu á fjármagni, aukinnar markaðsvæðingar og opnunar hagkerfisins hefur orðið til þess að auka umsvif og fjölbreytileika efnahagsstarfseminnar. Þannig hefur vöxtur landsframleiðslunnar verið meiri en hjá flestum öðrum OECD-ríkjum frá miðjum síðasta áratug. Skattkerfið ásamt öðrum skipulagsbreytingum hefur því haft áhrif til að auka tekjur og velferð landsmanna.
Þótt erfitt sé að meta áhrif skattbreytinga á einstaka skattstofna má sjá í töflunni hér að framan að hlutfall skatttekna af fjármagni af heildarskatttekjum hefur aukist mikið frá því að 10% fjármagnstekjuskattur var tekinn upp árið 1997.
Lækkun tekjuskattshlutfalls af hagnaði lögaðila hefur fylgt sambærileg aukning á skatttekjum af þeim skattstofni. Þar er um að ræða a.m.k. þrenns konar áhrif. Í fyrsta lagi hefur þeim fjárfestingartækifærum sem uppfylla arðsemiskröfur fjárfesta að teknu tilliti til skatta fjölgað. Því er að öðru óbreyttu ráðist í fleiri fjárfestingarverkefni en fyrir lækkun. Í öðru lagi hefur lækkun hlutfalls skattheimtu þau áhrif að núvirði framtíðarhagnaðar er hærra, sem hefur aftur jákvæð áhrif á mat á verðmæti hlutafjár fyrirtækja. Samhliða auknu markaðsvirði hlutafélaga ætti fyrirtækjum að ganga betur að sækja sér aukið fjármagn á hagstæðari kjörum en fyrir lækkun skatthlutfalls. Jafnframt hefur lækkun skatthlutfalls þau áhrif að það rekstrarumhverfi sem fyrirtækjum er búið hér á landi er samkeppnishæfara við það sem gerist erlendis og vinnur þannig gegn hugsanlegum flutningi fyrirtækja úr landi. Allt ofangreint hefur leitt til þess að skatttekjur af tekjuskatti lögaðila hafa aukist í kjölfar lækkunar skatthlutfalls af fjármagni.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1108 — 551. mál.
Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Péturs H. Blöndals um meginbreytingar á skattlagningu og áhrif þeirra á tekjur ríkissjóðs.
1. Hvaða meginbreytingar hafa verið gerðar á skattlagningu einstaklinga og lögaðila frá árinu 1990?
Skattkerfið á Íslandi hefur tekið stórfelldum breytingum á því tímabili sem hér um ræðir, þ.e. á tímabilinu 1991–2007, eins og sést best á eftirfarandi yfirliti:
| 1991 | 2007 | ||
| 1. Tekjuskattlagning einstaklinga | |||
| 1.1. | Tekjuskattshlutfall, % | 32,80 | 22,75 |
| 1.2. | Útsvar, % | 6,99 | 12,97 |
| 1.3 | Persónuafsláttur, kr. mánuði | 23.376 | 34.034 * |
| 1.4 | Skattleysismörk einstaklings, kr. á mánuði | 58.748 | 95.280 * |
| 1.5 | Iðgjald í lífeyrissjóð ** | innif. í persafsl. | 8% auk persafsl. |
| 1.6. | Skattleysismörk, m.t.t. 8% iðgjalds í lífeyrissjóð | 58.748 | 103.565 * |
| 1.7. | Millifærsla persónuafsláttar milli hjóna | 80% | 100% |
| 1.8. | Hátekjuskattur, % (tekinn upp 1993, 5%) | 0 | 0 |
| 1.9. | Fjármagnstekjuskattur, % | 0/39,79 *** | 10 |
| 1.10. | Hlutabréfaafsláttur afnuminn | ||
| 2. Tekjuskattlagning fyrirtækja | |||
| 2.1 | Tekjuskattshlutfall, % | 45 | 18 |
| 2.2 | Verðbólguleiðréttingar í skattskilum afnumdar | ||
| 2.3 | Aðstöðugjald, % af rekstrarkostnaði | 1,3 | 0 |
| 3. Eignarskattar | |||
| 3.1 | Almennur eignarskattur einstaklinga og fyrirtækja, % | 1,20 | 0 |
| 3.2 | Sérstakur eignarskattur einstaklinga og fyrirtækja, % | 0,25 | 0 |
| 3.3. | Skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði | 1,50 | 0 |
| 4. Tryggingagjald atvinnurekenda | 2,85/6,35 | 5,34 | |
| 5. Söluskattur/virðisaukaskattur, % | 24,5 | 7 og 24,5 * | |
** Hafa þarf í huga að þegar staðgreiðsla tekjuskatts var tekin upp árið 1988 var frádráttur ýmissa gjalda, þ.m.t. iðgjalda í lífeyrissjóð, sameinaður í einn frádrátt, þ.e. persónuafslátt eins og við þekkjum hann í dag.
*** Fyrir upptöku fjármagnstekjuskatts voru fjármagnstekjur skattlagðar á mjög mismunandi hátt. Þannig voru vaxtatekjur skattfrjálsar á meðan arðgreiðslur voru skattlagðar eins og launatekjur umfram tiltekin skattleysismörk. Með upptöku fjármagnstekjuskatts var skattlagning fjármagnstekna (vaxtatekna, arðs, söluhagnaðar og leigutekna) samræmd.
Ýmsar breytingar hafa einnig verið gerðar á barnabótum og vaxtabótum, einkum í þeim tilgangi að létta undir með tekjulágum og eignalitlum fjölskyldum með börn, jafnframt því að draga sem kostur er úr jaðaráhrifum bótakerfisins.
Þá hafa margvíslegar breytingar átt sér stað á álagningu tolla og vörugjalda á umræddu tímabili til lækkunar og hefur því dregið úr vægi þeirra tekjustofna. Á móti vegur upptaka umhverfisskatta, svo sem úrvinnslu- og spilliefnagjalda sem teljast til vörugjalda.
2. Hvaða áhrif hafa þessar breytingar haft á viðkomandi skattstofna og tekjur ríkissjóðs af þeim?
Í eftirfarandi töflu kemur fram hvernig vægi einstakra tekjustofna hefur verið að breytast á umræddu tímabili sem hlutfall af skatttekjum, sem gefur ákveðna mynd af því hvaða áhrif framangreindar breytingar hafa haft á einstaka tekjustofna ríkissjóðs. Þar kemur einnig fram hvert hlutfall heildarskatttekna ríkissjóðs er af vergri landsframleiðslu 1991 og 2007.
| 1991 | 2007 | Breyting | |
| % | % | %-stig | |
| Tekjuskattur einstaklinga | 20 ,3 | 21,3 | 1,0 |
| Tekjuskattur fyrirtækja | 2,8 | 8,9 | 6,1 |
| Fjármagnstekjuskattur | – | 6,4 | 6,4 |
| Eignarskattar * | 5,7 | 3,0 | – 2,7 |
| Tryggingagjöld | 8,8 | 10,3 | 1,5 |
| Virðisaukaskattur | 38,1 | 33,9 | – 4,2 |
| Aðrir skattar | 24,3 | 15,9 | – 8,1 |
| Skatttekjur, samtals | 100,0 | 100,0 | – |
| Skatttekjur, milljarðar króna | 111,3 | 401,5 | 290,2 |
| Skatttekjur, mia á föstu verði ** | 205 ,7 | 401,5 | 195,8 |
| Skatttekjur sem % af VLF | 27,7 | 28,9 | 1,1 |
|
*
Stimpilgjöld teljast til eignarskatta. ** M.v. verðvísitölu VLF, þ.e. vergrar landsframleiðslu. |
|||