Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 464. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1164 — 464. mál.
við frv. til l. um breyt. á lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum.
1. Við 2. gr.
a. 1. málsl. a-liðar orðist svo: Þó er heimilt að selja utan lyfjabúða flúorlyf og minnstu pakkningar og minnsta styrkleika nikótínlyfja sem ekki eru lyfseðilsskyld.
b. D-liður orðist svo: 1. málsl. 6. mgr. orðast svo: Lyfjastofnun er heimilt að fela framkvæmdastjóra heilsugæslustöðvar rekstur lyfjabúðar ef engin lyfjabúð er starfrækt í heilsugæsluumdæminu.
2. 3. málsl. 9. gr. falli brott.
3. 10. gr. orðist svo:
Við 42. gr. laganna bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Söluaðilar, þ.e. lyfjaheildsalar, lyfjaframleiðendur og umboðsmenn þeirra eða smásöluaðilar, sem vilja selja lyfseðilsskyld lyf á lægra verði en hámarksverð segir til um, skulu tilkynna lækkað verð til lyfjagreiðslunefndar sem birtir það í næstu útgáfu lyfjaverðskrárinnar. Söluaðili skal selja lyfið á sama verði á öllum sölustöðum sínum.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1164 — 464. mál.
Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum.
Frá meiri hluta heilbrigðisnefndar (ÁMöl, ÁÓÁ, ÁPÁ, VS, RR, EBS).