136. löggjafarþing — 132. fundur,  16. apr. 2009.

hlutafélög og einkahlutafélög.

356. mál
[00:26]
Horfa

Forseti (Þuríður Backman):

Forseti telur sig hafa svarað því fyrr í kvöld að það var lagt upp með það að vera hérna eitthvað fram á nótt. Með tilliti til þess að dagskráin er bæði löng og hún er þung þá ræðst það auðvitað af þingmönnum sjálfum hversu ítarlega þeir vilja ræða í hverju máli hversu langan tíma það tekur að fara niður dagskrána. Því legg ég það í hendur þingmanna sem eru hér og taka þátt í dagskránni með málflutningi að taka þá tillit til þess hve áliðið er því það verður haldið áfram með dagskrána eitthvað fram eftir og tímalengdin fer eftir ræðulengd þingmanna.