Lengd þingfundar

Föstudaginn 19. desember 2008, kl. 10:36:57 (2624)


136. löggjafarþing — 63. fundur,  19. des. 2008.

lengd þingfundar.

[10:36]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Erindi mitt í pontu nú er spurning hæstv. forseta til þingheims um hvort athugasemdir væru um að fundartíminn yrði lengdur umfram það sem kveðið er á um í þingsköpum. Ég geri ekki athugasemd við það fyrir okkar hönd en vil vekja athygli á því að þegar farið er fram á beiðni af þessu tagi lít ég svo á að hún gangi ekki lengra inn í nóttina en til miðnættis. Mér finnst ófært að með þessu móti séu menn að gefa grænt ljós á þinghald fram undir morgun, ótakmarkaðan þingtíma. Ég hef því allan fyrirvara á um hversu lengi þingfundur stendur og við munum hugsanlega gera athugasemdir við það ef okkur þykir óhóflega farið fram í því.