Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 81. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 86  —  81. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um fæðingarorlof kvenna sem gengist hafa undir tæknifrjóvgun.

Frá Katrínu Jakobsdóttur.



    Kemur til greina að endurskoða gildandi lagaákvæði um fæðingarorlof með tilliti til nýlegra breytinga á lögum um tæknifrjóvgun og lengja fæðingarorlof einhleypra kvenna sem hafa farið í tæknifrjóvgun úr sex mánuðum í níu mánuði þannig að börn þeirra fái jafnlangan tíma með foreldri í fæðingarorlofi og börn hjóna eða para?