Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 164. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 195  —  164. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um háhraðanetþjónustu.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hvað líður framkvæmd við háhraðanetþjónustu fyrir lögheimili með heilsársbúsetu og fyrirtæki með heilsársstarfsemi sem hvorki eiga kost á slíkri þjónustu nú né munu eiga kost á henni á markaðsforsendum?
     2.      Hversu mörg heimili og fyrirtæki munu njóta góðs af framkvæmdinni og hvenær má gera ráð fyrir að verkefninu verði lokið?