Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 112. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 270 — 112. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur um tilboð Breta um að færa reikninga Icesave yfir í breska lögsögu.
1. Hafði ráðherra, fyrir yfirtöku íslenska ríkisins á Landsbanka Íslands, vitneskju um tilboð breska fjármálaeftirlitsins (FSA) um að gegn 200 milljóna punda fyrirgreiðslu væri FSA tilbúið að færa reikninga Icesave yfir í breska lögsögu?
Nei.
2. Í hvað er ráðherra að vísa með eftirfarandi tilsvari í símtali við Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta:
Darling: „Ég tek því þá sem svo að loforðið sem Landsbankinn gaf okkur um að hann fengi 200 milljónir punda í reiðufé sé einnig fyrir bí?“
Ráðherra: „Já, þeir fengu ekki það fé.“?
Óskað er eftir því að ráðherra birti í svarinu minnisblöð sem tengjast þessu tilsvari.
Fjármálaráðherra taldi að fjármálaráðherra Breta væri að vísa til fyrirgreiðslu sem Landsbankinn hefði farið fram á í Seðlabanka Íslands en ekki fengið.
Ráðherra hefur engin minnisblöð um það mál.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 270 — 112. mál.
Svar