Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 197. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 526  —  197. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu tveggja viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Albaníu og Króatíu.

Frá minni hluta utanríkismálanefndar.



    Að loknu kalda stríðinu og hinum miklu sögulegu viðburðum í Evrópu eftir 1989 vöknuðu vonir um nýtt öryggisumhverfi í álfunni þar sem sameiginlegt öryggiskerfi allrar álfunnar leysti gömlu hernaðarbandalögin, bæði Atlantshafsbandalagið og Varsjárbandalagið, af hólmi. Í stað ógnarjafnvægis og vígbúnaðarkapphlaups yrði leitast við að þróa nýtt öryggiskerfi sem tryggði lýðræði, frið og stöðugleika í álfunni allri. Slíkt öryggiskerfi tæki til fleiri þátta en til stjórnmálaástands og hernaðarlegs styrks og endurspeglaði breytt inntak öryggishugtaksins sem vísar einnig og ekki síður til öryggis og stöðugleika hvað varðar umhverfismál, félagsmál og efnahagsmál.
    Minni hlutinn telur að vænlegasta leiðin í öryggismálum Evrópu hefði verið og sé sú að efla stofnunina um öryggi og samvinnu í Evrópu (ÖSE) sem sameiginlega friðar- og öryggisgæslustofnun fyrir álfuna alla. Þar geta allar þjóðir setið við sama borð og tekið þátt í að móta nýja stefnu í öryggis- og friðarmálum álfunnar, stefnu sem byggist á nýrri hugsun, alþjóðasamvinnu, afvopnun og viðleitni til friðsamlegra lausna deilumála. Slík samvinna er líklegri til þess að auka frið og stöðugleika í heiminum en útþensla og stækkun hernaðarbandalaga.
    Minni hlutinn telur skiljanlegt að þjóðir á Balkanskaga leiti eftir því að tengjast vestrænum bandalögum í ljósi sögunnar og átaka á tíunda áratug síðustu aldar. Að sjálfsögðu ber að virða sjálfsákvörðunarrétt þjóða og lýðræðislegan rétt þeirra til að ákveða hvernig varnar- og öryggismálum þeirra skuli háttað. Minni hlutinn telur þó ekki að stækkun Atlantshafsbandalagsins sé jákvætt skref í öryggismálum Evrópu og að vænlegra sé að gæta friðar, stöðugleika og öryggis í heiminum með því að efla stofnanir eins og ÖSE og með endurskipulögðu öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Með vísan í þessa afstöðu munu þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Alþingi, 11. feb. 2009.

    Árni Þór Sigurðsson, form.