Ađrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Ţingskjal 620, 136. löggjafarţing 185. mál: tekjustofnar sveitarfélaga og gatnagerđargjald (lögveđsréttur fasteignaskatts og endurgreiđsla gatnagerđargjalds).
Lög nr. 6 4. mars 2009.

Lög um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, og lögum um gatnagerđargjald, nr. 153/2006, međ síđari breytingum.

I. KAFLI
Breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, međ síđari breytingum.
1. gr.
     Viđ lögin bćtist ákvćđi til bráđabirgđa, er orđast svo:
     Ţrátt fyrir ákvćđi 7. gr. fylgir fasteignaskatti vegna áranna 2008–2010 lögveđ í fasteign ţeirri sem hann er lagđur á og skal hann, ásamt dráttarvöxtum í fjögur ár frá gjalddaga, ganga fyrir öllum öđrum veđkröfum er á eigninni hvíla.

II. KAFLI
Breytingar á lögum um gatnagerđargjald, nr. 153/2006, međ síđari breytingum.
2. gr.
     Eftirfarandi breytingar verđa á 9. gr. laganna:
a.
Í stađ orđanna „30 daga“ í 1. og 2. málsl. kemur: 90 daga.
b.
3. málsl. fellur brott.

3. gr.
     Í stađ dagsetningarinnar „31. desember 2009“ í 1. tölul. ákvćđis til bráđabirgđa í lögunum kemur: 31. desember 2012.

4. gr.
     Viđ lögin bćtist ákvćđi til bráđabirgđa, er orđast svo:
     Endurgreiđsla gatnagerđargjalda vegna lóđa sem úthlutađ var eđa byggingarleyfi var veitt á fyrir gildistöku laga ţessara skal verđbćtt miđađ viđ vísitölu neysluverđs frá greiđsludegi til endurgreiđsludags.

III. KAFLI
Gildistaka.
5. gr.
     Lög ţessi öđlast ţegar gildi.

Samţykkt á Alţingi 2. mars 2009.