Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 399. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 680  —  399. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um skýrslu um afhendingaröryggi orku á Vestfjörðum.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hvenær má vænta þess að lokið verði gerð skýrslu um afhendingaröryggi orku á Vestfjörðum?
     2.      Telur ráðherra að til álita komi að styðja sérstaklega við gerð Hvalárvirkjunar til þess að stuðla að auknu raforkuöryggi á Vestfjörðum?