Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 362. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 810  —  362. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 44/1999, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 25. mars.)



1. gr.


     Við 29. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Umhverfisstofnun skal halda námskeið í landvörslu í samræmi við reglugerð umhverfisráðherra, sbr. 2. mgr. Umhverfisstofnun er heimilt að taka gjald fyrir námskeið í landvörslu og próftöku sem þátttakendur greiða. Upphæð gjalds má ekki vera hærri en sá kostnaður sem hlýst af námskeiðshaldi og vinnu vegna próftöku. Ráðherra setur gjaldskrá að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar.
    

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.