Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 356. máls.
við frv. til l. um breyt. á l. um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (eignarhald, kynjahlutföll og starfandi stjórnarformenn).
1. Við 2. gr. Í stað 2. efnismálsl. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Í tilkynningum um stjórnir til hlutafélagaskrár skal sundurliða upplýsingar um hlutföll kynjanna í stjórn. Í hlutafélögum þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli skal jafnframt sundurliða upplýsingar um hlutföll kynjanna meðal starfsmanna og stjórnenda félagsins.
2. Við 7. gr. Í stað orðanna ,,83. gr.“ í a-lið komi: 84. gr.
3. Við 8. gr. Í stað 2. efnismálsl. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Í tilkynningum um stjórnir til hlutafélagaskrár skal sundurliða upplýsingar um hlutföll kynjanna í stjórn. Í einkahlutafélögum þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli skal jafnframt sundurliða upplýsingar um hlutföll kynjanna meðal starfsmanna og stjórnenda félagsins.
4. Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Haldi hlutafélag aðalfund innan lögmæltra tímamarka árið 2009 er því þó heimilt að fresta framkvæmd ákvæða um starfandi stjórnarformann til næsta aðalfundar þar á eftir.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Prentað upp.
Þskj. 844 — 356. mál.
Texti leiðréttur.
Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (eignarhald, kynjahlutföll og starfandi stjórnarformenn).
Frá 1. minni hluta viðskiptanefndar (ÁI, GSv, LB, VS).
1. Við 2. gr. Í stað 2. efnismálsl. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Í tilkynningum um stjórnir til hlutafélagaskrár skal sundurliða upplýsingar um hlutföll kynjanna í stjórn. Í hlutafélögum þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli skal jafnframt sundurliða upplýsingar um hlutföll kynjanna meðal starfsmanna og stjórnenda félagsins.
2. Við 7. gr. Í stað orðanna ,,83. gr.“ í a-lið komi: 84. gr.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.