137. löggjafarþing — 45. fundur, 16. júlí 2009.
Varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá hv. 8. þm. Norðaust., Birni Vali Gíslasyni, þar sem hann tilkynnir forföll frá þingsetu af persónulegum ástæðum. 1. varamaður flokksins í kjördæminu, Bjarkey Gunnarsdóttir kennari, tekur sæti hans á Alþingi í dag. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.