Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 16. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 234  —  16. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 45/1997, um vörumerki, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Borghildi Erlingsdóttur, Elínu Jónsdóttur og Margréti Hjálmarsdóttur frá Einkaleyfastofu, Hafdísi Ólafsdóttur frá Samkeppniseftirlitinu, Gísla Tryggvason, talsmann neytenda, og Jón Ögmund Þormóðsson frá viðskiptaráðuneyti. Nefndinni bárust umsagnir frá Lyfjastofnun og Viðskiptaráði Íslands. Frumvarp sama efnis var lagt fram á 136. löggjafarþingi en varð ekki útrætt. Þá bárust nefndinni umsagnir frá Félagi íslenskra stórkaupmanna, Samtökum verslunar og þjónustu og Viðskiptaráði.
    Með frumvarpinu er lögð til breyting á 2. mgr. 6. gr. laga um vörumerki í þá veru að tæming réttinda vörumerkis verði bundin við EES-svæðið í stað alþjóðlegrar tæmingar. Reglan um tæmingu vörumerkjaréttar varðar rétt eiganda merkis til að stjórna frekar markaðssetningu á grundvelli einkaréttar síns. Sé vara, auðkennd tilteknu vörumerki, komin á markað fyrir atbeina eða með samþykki eiganda þess getur hann ekki haft frekari áhrif á markaðssetningu hennar (t.d. sölu, leigu, inn- eða útflutning). Gengið hefur verið út frá því í íslenskum vörumerkjarétti að tæming næði til alls heimsins en það er ekki tekið með skýrum hætti fram í gildandi lögum. Tæming vörumerkjaréttar byggist á rétti vörumerkjahafa skv. 4. gr. laga um vörumerki, þ.e. að aðrir en eigandi vörumerkis megi ekki heimildarlaust nota í atvinnustarfsemi tákn sem eru eins og vörumerki hans eða lík því.
    Samkvæmt dómi EFTA-dómstólsins 8. júlí 2008, í málum nr. E-9/07 og E-10/07, LOréal Norge AS og LOréal SA gegn Per Aarskog AS, Nille AS og Smart Club AS, samræmist alþjóðleg tæming vörumerkjaréttinda ekki ákvæði vörumerkjatilskipunar 89/104/EB eins og dómstóllinn túlkar það, en tilskipunin er hluti EES-samningsins. Þarf því að breyta lagaákvæðinu og er með frumvarpinu lögð til lágmarksbreyting á 2. mgr. 6. gr. laganna svo að hún samræmist dóminum.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Steinunn Valdís Óskarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 7. júlí 2009.



Álfheiður Ingadóttir,


form., frsm.


Magnús Orri Schram.


Eygló Harðardóttir.



Lilja Mósesdóttir.


Jónína Rós Guðmundsdóttir.


Margrét Tryggvadóttir.