Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 152. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 270  —  152. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um eignarhald á fjölmiðlum.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.



    Hvers vegna er ekki gert ráð fyrir reglum um eignarhald á fjölmiðlum í þeim fjölmiðlalögum sem ætlunin er að setja samkvæmt stjórnarsáttmálanum og eiga að tryggja ritstjórnarlegt sjálfstæði og rétt blaðamanna?