Lánsfjárþörf ríkissjóðs

Mánudaginn 22. mars 2010, kl. 17:31:10 (0)


138. löggjafarþing — 97. fundur,  22. mars 2010.

lánsfjárþörf ríkissjóðs.

[17:31]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra fyrir ágætissvar en ég er að leita svars við nokkru sem ekki hefur verið kannað gaumgæfilega, það er hver lánsþörfin er.

Ráðherra kom réttilega inn á að það væri æskilegt að fjármagna lánsþörfina hér innan lands. Ég veit ekki betur en að hún hafi einmitt verið fjármögnuð með lánum sem koma héðan úr íslenska hagkerfinu. Spurningin er hins vegar þessi: Hversu mikið þurfum við að taka af lánum frá Norðurlöndunum, frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum? Er það forsenda þess að hægt sé að ráðast í hin og þessi verkefni?

Það þarf að endurfjármagna en ríkissjóður stendur (Forseti hringir.) ekki frammi fyrir því fyrr en í lok næsta árs og eins Landsvirkjun og einkafyrirtæki, (Forseti hringir.) eins og ég kom hér inn á áðan. Ef menn gætu kastað fram einhverri tölu held ég að það væri mjög gott fyrir umræðuna.