138. löggjafarþing — 164. fundur, 21. sept. 2010.
afsögn varaforseta.
Forseta hefur borist eftirfarandi bréf, dags. 21. sept. 2010:
„Hér með segi ég af mér sem 5. varaforseti Alþingis og óska eftir því að nýr varaforseti verði kosinn í minn stað við fyrstu hentugleika.
Virðingarfyllst,
Árni Þór Sigurðsson,
5. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður og 5. varaforseti Alþingis.“
Kosning 5. varaforseta verður því sett á dagskrá næsta þingfundar.