Niðurskurður hjá grunnskólum

Föstudaginn 27. nóvember 2009, kl. 10:54:54 (0)


138. löggjafarþing — 33. fundur,  27. nóv. 2009.

niðurskurður hjá grunnskólum.

[10:54]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr):

Frú forseti. Ég er með einfalda fyrirspurn til hæstv. menntamálaráðherra. Mig langaði að heyra hvað henni finnist um fyrirhugaðan niðurskurð í grunnskólum landsins. Það kom fram í vikunni sem er að líða að fyrirhugað væri að skera niður um einn milljarð í grunnskólum Reykjavíkur. Mig langaði að heyra álit hæstv. menntamálaráðherra á því hvort það sé ef til vill ástæða til að færa skólana aftur undir ríkið til að gæta jafnræðis í grunnskólamálum landsins.