138. löggjafarþing — 34. fundur, 28. nóv. 2009.
ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
76. mál
Frú forseti. Ég vil fá að taka það alveg skýrt fram að ég var ekki að segja að þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs væru óheiðarlegir. Ég sagði að afgreiðsla málsins í þinginu bæði í sumar og núna væri ekki heiðarleg.