Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Miðvikudaginn 30. desember 2009, kl. 22:55:21 (0)


138. löggjafarþing — 65. fundur,  30. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[22:55]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Frú forseti. Sú hugmynd að einkavæða gróðann en ríkisvæða tapið hugnast mér ekki. Þetta er ógeðslegt mál og ömurlegt á alla kanta. Það er vissulega skelfilegt að hugsa til þess fólks sem hefur tapað sparnaði sínum. Það breytir því ekki að við getum ekki tekið þessar byrðar á okkur, við ráðum ekki við þær án þess öryggisbúnaðar sem þingið smíðaði í sumar. Ég segi nei.