Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 36. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 36  —  36. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um aðsetur embættis ríkisskattstjóra.

Frá Birki Jóni Jónssyni.



    Hyggst ráðherra beita sér fyrir því, ef áætlaðar breytingar á skattumdæmum ganga eftir, að aðsetur embættis ríkisskattstjóra verði á landsbyggðinni, t.d. á Akureyri?