Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 79. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 79  —  79. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um þjónustu Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja.

Flm.: Guðrún Erlingsdóttir, Anna Margrét Guðjónsdóttir, Atli Gíslason,


Árni Johnsen, Björgvin G. Sigurðsson, Eygló Harðardóttir,
Ragnheiður E. Árnadóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson,
Unnur Brá Konráðsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að skipa vinnuhóp sem kanni möguleika á aukinni þjónustu Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja með tilkomu Landeyjahafnar, í því skyni að nýta betur þekkingu starfsmanna, húsnæði og tækjakost stofnunarinnar með samstarfi við önnur sjúkrahús.

Greinargerð.


    Með tilkomu Landeyjahafnar, sem áætlað er að taka í notkun í júlí 2010, og þeirra samgöngubóta sem henni fylgja er mögulegt að efla og stækka þjónustusvæði Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja.
    Með tillögu þessari er því lagt til að heilbrigðisráðherra verði falið að skipa vinnuhóp sem kanni sóknarmöguleika stofnunarinnar til þess að nýta betur þekkingu starfsmanna, húsnæði og tækjakost með samstarf við önnur sjúkrahús á landinu í huga.
    Með slíkri samvinnu væri unnt að tryggja betur öryggi heimamanna og þá grunnþjónustu sem nauðsynleg er vegna landfræðilegrar sérstöðu Vestmannaeyja. Auk þess gæfust möguleikar á aukinni þjónustu við íbúa nágrannasveitarfélaganna og aðra landsmenn í samstarfi við önnur sjúkrahús.
    Síðustu ár hefur orðið ákveðin þróun í átt að sérhæfingu í heilbrigðisþjónustunni þar sem einstök sjúkrahús hafa sérhæft sig á ákveðnum sviðum og er kjörið að skoða einnig Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja í því samhengi.
    Flutningsmenn telja könnun á sóknarmöguleikum Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja mjög brýna, sérstaklega á tímum niðurskurðar og hagræðingar, þegar nauðsynlegt er að leita allra leiða til þess að ná fram hagkvæmni og sparnaði, sem og að nýta betur húsnæði, tæki og þá víðtæku þekkingu sem starfsfólk býr yfir. Því telja flutningsmenn nauðsynlegt að vinna við þessa könnun hefjist nú þegar svo að unnt verði að nýta niðurstöðuna til aukinnar þjónustu og hagræðingar sem allra fyrst.