Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 29. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 124  —  29. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn Ragnheiðar E. Árnadóttur um kostnað við umsókn um aðild að Evrópusambandinu.

     1.      Hefur verið gerð nákvæm áætlun um kostnað við umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu?
    Kostnaðarmat liggur fyrir í þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um aðildarumsókn að Evrópusambandinu (fskj. IV, þskj. 249, 38. mál 137. löggjafarþings). Vegna þess hve margir þættir voru óljósir á þeim tíma er kostnaðarmatið fremur almennt.

     2.      Ef ekki, hvenær mun sundurliðuð áætlun liggja fyrir?
    Enn ríkir nokkur óvissa um kostnaðarþætti aðildarumsóknarinnar en samhliða því að skipulag næstu skrefa í ferlinu skýrast verður hægt að áætla kostnað af meiri nákvæmni. Ekki liggur á þessari stundu fyrir hvenær slík áætlun verður tilbúin.

     3.      Hversu mikill kostnaður hefur þegar fallið til vegna aðildarumsóknarinnar?
    Ráðuneytið hefur óskað eftir 50 millj. kr. fjárheimild í fjáraukalögum 2009 vegna kostnaðar við þýðingar og hefur nú þegar fallið töluverður kostnaður á þann lið vegna aðkeyptra þýðinga og við undirbúning stækkunar Þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins á næsta ári. Ráðuneytið hefur varið um 2,7 millj. kr. til aðkeyptra þýðinga, auk þess sem um 1 millj. kr. kostnaður hefur fallið til vegna undirbúnings á ráðningu þýðenda við Þýðingamiðstöð. Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna tæknibúnaðar nemi um 18 millj. kr. á þessu ári.
    Hvað varðar annan kostnað sem fallið hefur til vegna aðildarumsóknarinnar skal þess getið að ráðuneytið hefur gert ráð fyrir að fjármagna aðildarumsóknina að hluta með því að færa starfskrafta ráðuneytisins frá öðrum verkefnum til þessa verkefnis. Það er vandkvæðum bundið að meta nákvæmlega kostnaðinn sem þessu fylgir en ætla má að kostnaðarauki fyrir ráðuneytið verði óverulegur. Þessu til viðbótar er áætlaður ferðakostnaður vegna umsóknarinnar það sem af er þessu ári um 2,3 millj. kr.

     4.      Er gert ráð fyrir þessum kostnaði í fjárlagafrumvarpinu?
    Eins og fyrr greinir hefur ráðuneytið óskað eftir 50 millj. kr. heimild í fjáraukalögum 2009 vegna kostnaðar við þýðingar í tengslum við aðildarumsóknina. Þá hefur ráðuneytið í fjárlagafrumvarpi ársins 2010 óskað eftir 180 millj. kr. fjárheimild til þriggja ára til eflingar Þýðingamiðstöðvarinnar. Einnig hefur verið óskað eftir 250 millj. kr. fjárheimild í fjárlagafrumvarpi 2010 vegna annars kostnaðar við aðildarumsóknina og er þar af áætlaður 50 millj. kr. kostnaður vegna annarra ráðuneyta. Óskað hefur verið eftir 150 millj. kr. kostnaði á árinu 2011 og er gert ráð fyrir að allt að 50 millj. kr. þar af renni til annarra ráðuneyta. Ráðuneytið gerir ráð fyrir að kostnaðurinn verði meiri en þessu nemur, en mögulegt er að sækja um styrki úr sjóðum Evrópusambandsins til stuðnings undirbúningi aðildarferlis, sem koma þá á móti þeim kostnaði. Ekki liggur enn fyrir hver kostnaðarþátttaka Evrópusambandsins gæti orðið.