Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 121. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 134  —  121. mál.




Fyrirspurn


til iðnaðarráðherra um hagnýtingu orku sjávarfalla.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.


     1.      Hefur ráðherra gert ráðstafanir til þess að láta rannsaka á hvern hátt megi hagnýta orku sjávarfalla til styrktar þjóðarbúinu í framtíðinni?
     2.      Hefur Hvammsfjörður verið skoðaður sérstaklega í þessu sambandi?