Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 141. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 154  —  141. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um sameiningu rannsóknarnefnda samgönguslysa.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.


     1.      Hefur ráðherra í hyggju að færa starfsemi rannsóknarnefndar sjóslysa frá Stykkishólmi í tengslum við boðaðar hugmyndir um sameiningu rannsóknarnefndar umferðarslysa, rannsóknarnefndar flugslysa og rannsóknarnefndar sjóslysa?
     2.      Kemur til greina að höfuðstöðvar hinnar nýju stofnunar verði utan höfuðborgarsvæðisins?