Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 236. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 268  —  236. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um listnám í grunn- og framhaldsskólum.

Frá Ragnheiði Ríkharðsdóttur.



     1.      Er lokið könnun og kortlagningu listnáms í grunn- og framhaldsskólum og ef svo er, hefur skýrsla þar að lútandi verið unnin og kynnt formlega?
     2.      Er ætlun ráðuneytisins að vinna frekar með fengnar niðurstöður og þá hvernig?