Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 173. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 274  —  173. mál.




Svar



heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Önnu Pálu Sverrisdóttur um málefni Neyðarmóttöku vegna nauðgunar.

     1.      Hvað kostar starfsemi Neyðarmóttöku vegna nauðgunar? Á að ganga lengra í sparnaðaraðgerðum á Neyðarmóttökunni en gert hefur verið á undanförnum árum?
    Samkvæmt upplýsingum Landspítala var kostnaður vegna Neyðarmóttökunnar undanfarin þrjú ár eftirfarandi: 32,2 millj. kr. árið 2006, 31,5 millj. kr. árið 2007 og 27,1 millj. kr. árið 2008. Kostnaður vegna starfseminnar árið 2009 er áætlaður 29,2 millj. kr.
    Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010 er Landspítala gert að lækka rekstrarkostnað sem nemur tæpum 2 milljörðum kr. á árinu 2010 miðað við fjárveitingar 2009. Ekki hafa verið teknar ákvarðanir um að skerða framlög til Neyðarmóttökunnar á næsta ári.
    Þekkt er að ein af afleiðingum efnahagslegra þrenginga er aukið kynbundið ofbeldi. Á slíkum tímum fer mikilvægi starfsemi Neyðarmóttökunnar síst minnkandi. Ráðherra hefur m.a. af því tilefni óskað eftir tillögum um eflingu Neyðarmóttökunnar frá forstjóra Landspítala sem og verkefnisstjóra Neyðarmóttökunnar.

     2.      Er hætt við að kostnaður heilbrigðisþjónustunnar við áfallastreituröskun eða aðrar geðraskanir í kjölfar nauðgunar geti aukist ef starfsemi Neyðarmóttökunnar er skert?
    Ef einhverjir þættir þeirrar þjónustu sem boðið hefur verið upp á hjá Neyðarmóttökunni undanfarin ár legðust af má fyllilega búast við því að kostnaður heilbrigðisþjónustunnar mundi aukast annars staðar, fyrir utan þær líkamlegu og geðrænu afleiðingar sem slíkt gæti haft í för með sér fyrir viðkomandi einstaklinga.

     3.      Hvers eðlis er starfsemi Neyðarmóttökunnar? Er þeirri hugmyndafræði sem lá að baki Neyðarmóttökunni við stofnun hennar enn þá fylgt af hálfu heilbrigðisyfirvalda? Er t.d. viðurkennt í verki að komur á Neyðarmóttöku vegna nauðgunar eru allt annars eðlis en aðrar komur á bráðadeild og því þarf annars konar þjónustu sem krefst mikillar nærgætni og tíma?
    Kynferðislegt ofbeldi er samfélagslegt vandamál sem hefur alvarleg og oft mjög langvarandi áhrif á andlega og líkamlega heilsu þolanda. Neyðarmóttakan var stofnuð eftir áralanga baráttu fyrir bættum mannréttindum hér á landi og vegna brýnnar þarfar. Markmiðið var að veita þolendum kynferðisofbeldis nauðsynlega aðhlynningu og þjónustu og að veita hana á forsendum þolandans. Jafnframt skyldi lögð áhersla á að afla réttarlæknisfræðilegra gagna til stuðnings kæru sem þolandi kann að leggja fram. Upphaflegri hugmyndafræði er enn fylgt í starfsemi Neyðarmóttökunnar.
    Með opnun Neyðarmóttökunnar á árinu 1993 viðurkenndu heilbrigðisyfirvöld í reynd að kynferðislegt ofbeldi er af öðrum toga en aðrar komur á bráðadeild. Þolendur kynferðisafbrota þurfa mikla sálræna aðstoð og við móttöku þeirra þarf að sýna mikla nærgætni. Þjónusta Neyðarmóttökunnar lýtur því öðrum lögmálum en önnur spítalaþjónusta. Þjónusta Neyðarmóttökunnar er nafnlaus og gjaldfrjáls og þolendum gefinn sá tími sem til þarf. Þolendur gefa skýrslu, fara í læknisskoðun og tekin eru lífsýni. Þeim er einnig boðin sálfræðiaðstoð og lögfræðiaðstoð.

     4.      Er starfsumhverfi Neyðarmóttökunnar fyrst og fremst hugsað út frá hagsmunum brotaþola þess glæps sem nauðgun er og að brotaþoli fái bestu mögulega þjónustu?
    Starfsemi Neyðarmóttökunnar hefur ávallt verið með þeim hætti að hagsmunir brotaþola eru hafðir í fyrirrúmi með það að markmiði að veita stuðning og meðferð, safna sakargögnum og útbúa gögn með þeim hætti sem réttarkerfið krefst, leggi brotaþoli fram kæru í málinu strax við komu eða á síðari stigum. Öll þjónusta hefur haft þetta að leiðarljósi, þótt alltaf megi betur gera.

     5.      Hvernig ætla heilbrigðisyfirvöld að tryggja að reyndir læknar framkvæmi skoðun á brotaþola, sem getur skipt sköpum við meðferð máls vegna nauðgunar fyrir dómi? Er rétt að fyrirhugað sé að breyta fyrirkomulagi læknisþjónustu Neyðarmóttökunnar?
    Sú ábyrgð hvílir á stjórnendum allra heilbrigðisstofnana að sjá til þess að færni og reynsla sé til staðar þegar heilbrigðisstarfsmenn ganga til verka. Þetta á ekki síður við á Neyðarmóttökunni en öðrum deildum Landspítalans, svo sem skurðstofum, gjörgæsludeildum o.s.frv. Þessari færni er náð með þjálfun og endurmenntun eftir því sem við á á hverjum stað eða deild. Samhliða þessum mikilvægu þáttum þarf að hyggja að endurnýjun og tryggja að þekking sé til staðar á það breiðum grunni að rof verði ekki í þjónustunni við veikindi starfsmanna eða aðrar fjarvistir.
    Stjórnendur Landspítala hafa ákveðið að fjölga í þeim hópi hjúkrunarfræðinga sem vinna við Neyðarmóttökuna og er fyrirhugað að hjúkrun verði sinnt á vöktum en ekki með útkalli hverju sinni. Á sama hátt hafa þeir íhugað að fjölga í þeim hópi lækna og sálfræðinga sem kæmi að störfum á Neyðarmóttöku eftir að bráðadeildir sjúkrahússins hafa verið sameinaðar í mars á næsta ári. Markmiðið er tvíþætt, annars vegar að tryggja að þjónustan verði ekki of veik vegna fámennis í þeim hópi heilbrigðisstarfsfólks sem hefur annast þessi störf og hins vegar að draga úr kostnaði vegna bakvakta en engar ákvarðanir hafa verið teknar í þessum efnum.
    Hugmyndin að baki Neyðarmóttökunni er að reyndir læknar framkvæmi skoðun á brotaþola og hefur ráðherra lagt áherslu á að reynslu og sérfræðiþekkingu Neyðarmóttökunnar á kynferðisbrotum og afleiðingum þeirra verði ekki fórnað við sameiningu bráðadeilda spítalans.

     6.      Hvernig hefur starfsemi Neyðarmóttökunnar reynst í samanburði við svipuð úrræði annars staðar á Norðurlöndunum? Hve margir leita til Neyðarmóttökunnar og hver er kostnaðurinn samanborið við Norðurlöndin?
    Fram til ársins 2009 höfðu 1684 einstaklingar leitað til Neyðarmóttökunnar. Flestir komu 2006, 145 einstaklingar, 2007 komu 136 og 2008 leituðu 118 einstaklingar til Neyðarmóttökunnar. Það sem af er árinu 2009 hafa um 110 leitað á móttökuna.
    Neyðarmóttökur á Norðurlöndum hafa ekki verið bornar saman formlega þótt þær séu í meginatriðum reknar á svipaðan hátt og með sömu markmið að leiðarljósi. Ekki hefur reynst gerlegt að bera saman kostnað þar eð kostnaður er bókfærður á mismunandi hátt hjá heilbrigðisyfirvöldum eða sjúkrahúsum viðkomandi svæða. Til samanburðar má þó geta að á neyðarmóttöku Læknavaktarinnar (Legevakten) í Ósló, sem sinnir um 850.000 íbúum, hafa undanfarin ár leitað um 300 einstaklingar á ári. Búist er við að þeir verði yfir 350 á þessu ári samkvæmt upplýsingum frá Noregi. Á neyðarmóttöku (Center for Voldtægtsofre) á Rigshospitalet í Kaupmannahöfn koma árlega um 350 þolendur kynferðisofbeldis.
    Í úttekt á neyðarmóttökum eða úrræðum fyrir þær/þá sem hefur verið nauðgað sem Liz Kelly (prófessor í London Metropolitan University, virt og þekkt fræðikona á þessu sviði) gerði fyrir WHO á árinu 2003 var Neyðarmóttakan á Landspítala valin sem ein af fáum öndvegissetrum í heiminum (centres of excellence). Hún hefur hins vegar notið virðingar allra norrænna kollega sem að þessum málum vinna og þótt vera fyrirmynd hvað varðar rekstur og þjónustu, bæði skipulag og fjárhagslegan kostnað.

     7.      Hefur Neyðarmóttakan hlutverki að gegna í baráttunni við mansal og vændi? Ef svo er, í hverju felst það hlutverk?
    Neyðarmóttakan gegnir mikilvægu hlutverki í baráttunni við mansal og vændi því að sú sérhæfing og sérfræðiþekking sem þar hefur verið byggð upp verður nýtt til hins ýtrasta í baráttunni gegn mansali.
    Ríkisstjórn Íslands samþykkti 17. mars sl. aðgerðaáætlun gegn mansali sem á að gilda til ársloka 2012. Í henni er gert ráð fyrir sérfræði- og samhæfingarteymi viðeigandi ráðuneyta, stofnana og frjálsra félagasamtaka, sem og neyðarteymis innan þess. Fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins situr í teymunum til að tryggja fórnarlömbum sem greiðastan aðgang að heilbrigðisþjónustunni.
    Flestar konur sem seldar eru mansali lenda í kynlífsþrælkun og eru neyddar til að stunda vændi. Neyðarmóttakan mun gegna lykilhlutverki í aðkomu heilbrigðisþjónustunnar að þessum málaflokki sökum sérfræðiþekkingar á kynferðislegu ofbeldi og reynslu af móttöku og stuðningi við þolendur slíkra glæpa.

     8.      Mun ráðherra beita sér fyrir að stór samráðsfundur um málefni Neyðarmóttökunnar, sem skrifað var m.a. um í frétt í Morgunblaðinu 15. september sl., verði haldinn?
    Í september sl. var fyrirhugað að halda stóran samráðsfund um málefni Neyðarmóttökunnar í kjölfar fregna af fyrirhuguðum hagræðingaraðgerðum á Landspítala. Ráðherra hefur skoðað aðbúnað Neyðarmóttökunnar og í kjölfarið óskað eftir tillögum frá forstjóra Landspítalans og forstöðukonu Neyðarmóttökunnar um eflingu þeirrar mikilvægu starfsemi sem þar fer fram. Í bréfi ráðherra segir m.a.:
    „Eftir að hafa fengið upplýsingar um stöðu mála telur ráðuneytið þörf á eflingu Neyðarmóttökunnar einkum hvað varðar eftirfarandi:
     *      Hlut 18 ára og yngri sem nú eru um 37% þeirra sem koma á Neyðarmóttökuna.
     *      Upplýsingar um alvarlegri brot sem hafa færst í aukana, svo sem hópnauðganir og nauðganir á skemmtistöðum.
     *      Nauðsyn þess að koma upp móttöku og bráðaþjónustu fyrir þolendur mansals.
     *      Vaxandi hlut alvarlegra áverka hjá þolendum heimilisofbeldis.
     *      Niðurskurð í heilbrigðisþjónustu sem samkvæmt leiðarljósum ríkisstjórnarinnar má ekki bitna á þeim sem veikastir eru fyrir, þar á meðal konum og börnum, sem eru samkvæmt skráningum helstu þolendur kynferðisofbeldis.“
    Ráðherra væntir tillagna fyrrnefndra stjórnenda á næstu dögum og verða þá teknar ákvarðanir um framhaldið.