Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 295. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 341  —  295. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um samninganefnd um aðildarviðræður við ESB.

Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.



     1.      Hverjir skipa samningahópa á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs sem starfa munu með samninganefndinni um aðildarviðræður við ESB?
     2.      Hvaða ástæður eða rök lágu fyrir vali einstakra nefndarmanna í samninganefndinni?
     3.      Hvert er hlutverk nefndarinnar? Óskað er eftir að erindisbréf hennar verði lagt fram.


Skriflegt svar óskast.