um breytingu á lögum nr. 47/2004, um þjóðgarðinn á Þingvöllum, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 21. des.)
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
a.
Í stað orðsins „þings“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: kjörtímabils.
b.
Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þjóðgarðurinn er að öllu leyti undanþeginn lögum um frístundabyggð og leigu lóða
undir frístundahús.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þingvallanefnd sem nú situr skal halda umboði sínu þar til ný nefnd hefur verið kjörin eftir
næstu alþingiskosningar.