Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 295. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 639  —  295. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um samninganefnd um aðildarviðræður við ESB.

     1.      Hverjir skipa samningahópa á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs sem starfa munu með samninganefndinni um aðildarviðræður við ESB?
    Eftirtalin skipa þá samningahópa sem óskað er upplýsinga um:

Samningahópur um landbúnaðarmál.
    Sigurgeir Þorgeirsson     Formaður
    Níels S. Olgeirsson     Alþýðusamband Íslands
    Þráinn Hallgrímsson     Alþýðusamband Íslands
    Elín Björg Jónsdóttir     BSRB
    Erna Bjarnadóttir     Bændasamtök Íslands
    Sigurbjartur Pálsson     Bændasamtök Íslands
    Baldur Helgi Benjamínsson     Bændasamtök Íslands
    Steinþór Skúlason     Landssamtök sláturleyfishafa
    Þórhallur Arason     Fjármálaráðuneytið
    Inga Ósk Jónsdóttir     Iðnaðarráðuneytið
    Guðmundur Stefánsson     Landgræðsla ríkisins
    Jóhannes Gunnarsson     Neytendasamtökin
    Páll Magnússon     Samband íslenskra sveitarfélaga
    Finnbogi Rögnvaldsson     Samband íslenskra sveitarfélaga
    Jóhannes Finnur Halldórsson     Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið
    Pálmi Vilhjálmsson     Samtök atvinnulífsins
    Erna Hauksdóttir     Samtök ferðaþjónustunnar
    Ragnheiður Héðinsdóttir     Samtök iðnaðarins
    Guðmundur Sigþórsson     Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
    Ólafur Friðriksson     Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
    Aðalsteinn Sigurgeirsson     Skógrækt ríkisins
    Harald Aspelund     Utanríkisráðuneytið
    Kristján Andri Stefánsson     Utanríkisráðuneytið
    Baldur P. Erlingsson    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, starfsmaður samningahóps
    Arnór Snæbjörnsson    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, starfsmaður samningahóps
    Ingólfur Friðriksson     Utanríkisráðuneytið, starfsmaður samningahóps
    Andri Júlíusson    Utanríkisráðuneytið, starfsmaður samningahóps
         Samningahópur um sjávarútvegsmál.
    Kolbeinn Árnason     Formaður
    Hólmgeir Jónsson     Alþýðusamband Íslands
    Guðmundur Þ. Ragnarsson     Alþýðusamband Íslands
    Skúli Thoroddsen     Alþýðusamband Íslands
    Guðmundur Gunnarsson     Alþýðusamband Íslands
    Guðjón Ármann Einarsson     Farmanna- og fiskimannasamband Íslands
    Árni Múli Jónasson     Fiskistofa
    Magnús Ó. Hafsteinsson     Fjármálaráðuneytið
    Jóhann Sigurjónsson     Hafrannsóknarstofnun
    Georg Lárusson     Landhelgisgæslan
    Adolf Guðmundsson     Landssamband íslenskra útvegsmanna
    Eiríkur Tómasson     Landssamband íslenskra útvegsmanna
    Friðrik J. Arngrímsson     Landssamband íslenskra útvegsmanna
    Arthur Bogason     Landssamband smábátaeigenda
    Ingólfur Örn Þorbjörnsson     Nýsköpunarmiðstöð
    Vilhjálmur Egilsson     Samtök atvinnulífsins
    Helgi Jóhannesson     Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda
    Arnar Sigurmundsson     Samtök fiskvinnslustöðva
    Hermann Stefánsson     Samtök fiskvinnslustöðva
    Arndís Á. Steinþórsdóttir     Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
    Steinar I. Matthíasson     Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
    Tómas H. Heiðar     Utanríkisráðuneytið
    Anna Jóhannsdóttir     Utanríkisráðuneytið
    Ævar Rafn Björnsson     Utanríkisráðuneytið, starfsmaður samningahóps
    Þórður Jónsson     Utanríkisráðuneytið, starfsmaður samningahóps

    Nánari upplýsingar um hlutverk samningahópana auk erindisbréfa þeirra er að finna á Evrópuvef utanríkisráðuneytisins. 1

     2.      Hvaða ástæður eða rök lágu fyrir vali einstakra nefndarmanna í samninganefndinni?
    Við skipan í samninganefnd um fyrirhugaðar aðildarviðræður við Evrópusambandið (ESB) var fyrst og fremst horft til nefndarálits meiri hluta utanríkismálanefndar Alþingis um þingsályktunartillöguna um aðildarviðræður. Í álitinu kemur fram áhersla á breiða aðkomu úr stjórnsýslunni og frá hagsmunaaðilum að aðildarferlinu og að kallaðir verði til verka einstaklingar með þekkingu og reynslu sem nýtast kunni í aðildarviðræðunum.
    Aðalsamningamaður Íslands, Stefán Haukur Jóhannesson, er einn reyndasti samningamaður Íslands á alþjóðavettvangi. Stefán hefur verið sendiherra Íslands gagnvart ESB í Brussel frá árinu 2005 og hefur þar að auki gegnt fjöldamörgum trúnaðarstörfum fyrir Íslands hönd síðan hann hóf störf í utanríkisþjónustunni fyrir tæpum aldarfjórðungi. Hann hefur einnig ítrekað verið kallaður til ábyrgðarstarfa af alþjóðasamfélaginu og nú síðast hafa Rússar farið fram á það við íslensk stjórnvöld að hann haldi áfram störfum sínum sem formaður vinnuhóps um aðild Rússlands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni, WTO. Að baki ákvörðun um aðalsamningamann liggur víðtækt óformlegt samráð við stjórnmálaflokka og hagsmunaaðila. Hinu sama gegndi í raun um skipan formanna í þá samningahópa sem fjalla munu um veigamestu hagsmunamál Íslands í aðildarviðræðum við ESB en þeir sitja einnig í samninganefndinni.
    Varaformenn samninganefndarinnar eru þau Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti og deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands og Þorsteinn Gunnarsson, fyrrv. rektor Háskólans á Akureyri. Þau koma úr háskólasamfélaginu en hafa að auki víðtæka reynslu af alþjóðasamstarfi og úr stjórnsýslunni.
    Tíu formenn einstakra samningahópa sitja í samninganefndinni. Þeir voru valdir sökum þekkingar sinnar og reynslu af viðkomandi málaflokki sem felst ekki síst í samningareynslu þeirra á alþjóðavettvangi, svo sem í samningum við ESB og í fríverslunarsamningum og í alþjóðasamningum um fiskveiðar. Þá sitja sex einstaklingar í nefndinni sem utanríkisráðherra taldi æskilegt að hafa í henni sökum þekkingar þeirra og reynslu af ESB og alþjóðlegri samningagerð, rannsóknarstörfum og stjórnmála- og þjóðmálaþátttöku. Þannig er það mat utanríkisráðherra að í samninganefndinni sé samankominn hópur einstaklinga með víðtæka reynslu í alþjóðlegum samningum auk þess að hafa breiðan bakgrunn og víðtækt þekkingarsvið. Þá eru í nefndinni fulltrúar úr háskólasamfélaginu og fólk sem þekkir vel til hagsmunamála landsbyggðarinnar.
    Síðast en ekki síst er rétt að geta þess að jafnréttissjónarmið voru höfð til hliðsjónar við skipan samninganefndarinnar, en í nefndinni sitja níu konur og níu karlar.
    Nánari upplýsingar um einstaka nefndarmenn og æviágrip þeirra er að finna á Evrópuvef utanríkisráðuneytisins. 2 Að sama skapi er þar að finna upplýsingar um alla þá einstaklinga sem skipaðir hafa verið í einstaka samningahópa.

     3.      Hvert er hlutverk nefndarinnar? Óskað er eftir að erindisbréf hennar verði lagt fram.
    Hlutverk samninganefndarinnar er skýrt í erindisbréfi hennar sem fylgir svari þessu en það er jafnframt aðgengilegt á Evrópuvef utanríkisráðuneytisins. 3


Fylgiskjal.


ERINDISBRÉF



Efni: Samninganefnd um aðildarviðræður við ESB.

    Í samræmi við ályktun Alþingis um aðildarumsókn að Evrópusambandinu (ESB) sem samþykkt var á Alþingi 16. júlí 2009 hefur utanríkisráðherra ákveðið að skipa samninganefnd um aðildarviðræður við ESB.
    Hlutverk samninganefndarinnar er að vera aðalsamningamanni til ráðgjafar og stuðnings í samningaviðræðum við ESB. Þá er nefndinni ætlað að fjalla um samningsafstöðu Íslands í viðræðunum á grundvelli tillagna samningahópa á einstökum samningssviðum. Nefndin skal einnig fjalla um viðræðuáætlun og framkvæmd hennar og vera upplýsinga- og samráðsvettvangur formanna einstakra samningahópa.
    Í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar (137. löggjafarþing, þingskjal 249) var fjallað um þá meginhagsmuni sem lúta að aðildarviðræðum við ESB og lögð áhersla á að þeir yrðu afmarkaðir og samningsmarkmið byggð á þeim. Þessir hagsmunir varða m.a. orku- og auðlindamál, sjávarútvegsmál, landbúnaðar- og byggðamál, umhverfismál, atvinnu- og iðnaðarmál, almannaþjónustu og félagsmálefni, gjaldmiðilsmál, málefni tengd EES-samningnum, öryggis- og varnarmál, skatta- og tollamál og fjárhagsleg málefni er tengjast aðild. Þá leggur meiri hlutinn áherslu á að stjórnvöld standi vörð um íslenska þjóðmenningu og þjóðhætti, stöðu íslenskrar tungu og að hún verði eitt af opinberum tungumálum ESB. Að öðru leyti er vísað til álitsins, en samninganefndin skal í starfi sínu leggja þau sjónarmið sem þar koma fram til grundvallar og gæta hagsmuna þjóðarinnar í hvívetna.
    Aðalsamningamaður stýrir aðildarviðræðunum í umboði utanríkisráðherra, stjórnar starfi nefndarinnar og skiptir verkum innan hennar eftir því sem þörf er talin á. Aðalsamningamaður getur kveðið á um að einstakir nefndarmenn taki þátt í störfum samningahópa eins og þurfa þykir.
    Nefndarmenn eru:
    Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður og formaður
    Björg Thorarensen, varaformaður (lagamál)
    Þorsteinn Gunnarsson, varaformaður
    Anna Jóhannsdóttir (EES II, félagsmál –- þjónusta – fjárfestingar – umhverfismál o.fl.)
    Bryndís Kjartansdóttir (EES I, vörur – orka – samkeppnismál o.fl.)
    Gréta Gunnarsdóttir
    Högni S. Kristjánsson
    Kolbeinn Árnason (sjávarútvegsmál)
    Kolfinna Jóhannesdóttir
    María Erla Marelsdóttir (utanríkisviðskipti, utanríkis- og öryggismál)
    Maríanna Jónasdóttir (fjárhagsmálefni)
    Martin Eyjólfsson
    Már Guðmundsson (myntbandalag)
    Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir (byggða- og sveitarstjórnarmál)
    Ragnhildur Helgadóttir (dóms- og innanríkismál)
    Sigurgeir Þorgeirsson (landbúnaðarmál)
    Sturla Sigurjónsson
    Þorsteinn Pálsson

    Utanríkisráðuneytið leggur nefndinni til starfsaðstöðu og starfsmenn eftir þörfum.
    Nefndin mun óska eftir aðstoð erlendra sem innlendra sérfræðinga eftir því sem þurfa þykir.



Neðanmálsgrein: 1
    1 Sjá evropa.utanrikisraduneyti.is/samninganefnd /samningahopar/
Neðanmálsgrein: 2
    2 Sjá: evropa.utanrikisraduneyti.is/samninganefnd/
Neðanmálsgrein: 3
    3 Sjá: evropa.utanrikisraduneyti.is/media/evropa/samningahopar/Adalsamninganefnd.pdf.