Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 417. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 734  —  417. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um álit framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Frá Ragnheiði E. Árnadóttur.



     1.      Hyggst ráðherra láta þýða á íslensku álit framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðildarumsókn Íslands að ESB?
     2.      Hvernig hyggst ráðherra kynna álitið fyrir þingi og þjóð áður en það verður tekið fyrir á fundi leiðtoga Evrópusambandsríkjanna í lok þessa mánaðar?