Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 372. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 794  —  372. mál.




Svar



heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um niðurskurð í Norðvesturkjördæmi.

     1.      Hversu mikið er sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum í Norðvesturkjördæmi gert að skera niður á árinu 2010, skipt eftir stofnunum?
    Eftirfarandi tafla sýnir framlög til heilbrigðisstofnana í Norvesturkjördæmi samkvæmt fjárlögum 2010 og lækkun framlags frá fyrra ári.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




     2.      Til hvaða aðgerða hafa stofnanirnar, hver fyrir sig, nú þegar gripið?
    Hér á eftir fer upptalning helstu hagræðingaraðgerða heilbrigðisstofnana kjördæmisins á árinu 2009.

Heilbrigðisstofnunin Akranesi.
          Föst og tímamæld yfirvinna skert.
          Aksturssamingar lækkaðir um 50%.
          Afleysingar geislafræðinga, iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara felldar niður.
          Afleysing hjúkrunarfræðinga, ljósmæðra og lækna minnkaðar, settar í algjört lágmark.
          Auknar sértekjur vegna aðstöðugjalda.
          Stöður hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða endurskipulagðar.
          Breytt vaktafyrirkomulag hjá hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum og sjúkraliðum á legudeildum.
          Stöðugildi ritara og bókara færð niður.
          Staða öldrunarlæknis minnkuð.
          Öldrunarendurhæfing lokuð í þrjá mánuði yfir sumarið.
          Stöðugildi lækkað vegna hjartalínurits.
          Fækkun liðskiptaaðgerða.
          Nemastaða læknaritara ekki nýtt.
          Lokun afgreiðsludeildar (móttökuritarar og símaafgreiðsla) á laugardögum og styttur afgreiðslutími á virkum dögum.
          Dregið úr vakt heilsugæslulækna um 50%, gæsluvakt II.

St. Franciskusspítali.
          Dregið úr kostnaði vegna námskeiða og endurmenntunar.
          Dregið úr akstri starfsmanna.
          Dregið úr kostnaði vegna aukavakta og yfirvinnu, reglur um útköll hertar.
          Ekki ráðið í 70% stöðu sjúkraþjálfara (tímabundin aðgerð).
          Ekki ráðið í störf sem losna nema nauðsyn krefji.
          Staða hjúkrunarforstjóra laus og deildarstjóri kemur í staðinn (á lægri launum).
          Enginn ráðinn í stöðu skrifstofustjóra sem losnaði á árinu.
          Sparnaður í rannsóknum, með nýjum tækjum er hægt að rannsaka á staðnum það sem áður var sent á sjúkrahúsið á Akureyri. Stofnunin þjónustar Heilsugæslustöð Grundarfjarðar og fær af því sértekjur.
          Dregið úr kaupum á læknisfræðilegri sérfræðiþjónustu vegna rannsókna.
          Dregið var úr þjónustu tímabundið seinasta hluta ársins með því að herða á innlögnum en starfsemi er komin aftur í fyrra horf. Starfsfólk leggur meira á sig til þess að þetta gangi eftir.

Heilbrigðisstofnunin Hólmavík.
          Lækkun launakostnaðar læknis vegna námsleyfa (15 dagar).
          Læknamóttöku á Drangsnesi hætt.
          Fækkun ferða í heilsugæslustöð í Árneshreppi.
          Ekki ráðinn hjúkrunarfræðingur í afleysingar.
          Minnkaðar afleysingar og yfirvinna.
          Sjúkraliða á Drangsnesi sagt upp starfi við flúorskolanir.
          Hagræðing í lyfjakaupum sjúkrahúss.
          Lækkun ferða- og dvalarkostnaðar innanlands.
          Sparnaður í rannsóknakostnaði.
          Hækkun sértekna vegna vistgjalda.

Heilbrigðisstofnunin Hvammstanga.
          Lækkun launakostnaðar lækna og hjúkrunarforstjóra.
          Stytting vakta og fækkun stöðugilda, u.þ.b. tvö stöðugildi.
          Minnkun starfshlutfalls í félagsstarfi, 50%.
          Tímabundin fækkun hjúkrunarfræðinga.
          Minnkaðar afleysingar og yfirvinna.
          Akstur og húsaleigufríðindi minnkuð.
          Bifreiðakostnaður lækkaður.
          Minnkun starfshlutfalls sjúkraþjálfara.
          Aðhald í innkaupum í eldhúsi.
          Aðhald í endurmenntunar- og námskeiðskostnaði.

Heilbrigðisstofnunin Patreksfirði.
          Stöðugildi sjúkraþjálfara minnkað úr 50% í 30%.
          Starf hjúkrunarforstjóra á heilsugæslu lagt niður og hjúkrun á stofnuninni sett undir einn hatt.
          Læknar fara í tveggja mánaða launalaus leyfi auk sumarfría og námsleyfa, verktakar leysa þá af og hefur þetta fyrirkomulag lægri launakostnað í för með sér.
          Dregið úr gæsluvöktum lífeindafræðings um þriðjung.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
          Stöður deildarstjóra á bráða- og öldrunardeild hafa verið sameinaðar í eina stöðu deildarstjóra legudeilda.
          Aðstoðardeildarstjórum fækkað um einn.
          Bakvakt hjúkrunarfræðings í Bolungarvík hefur verið felld niður.
          Læknum hefur fækkað um einn (samningur ekki framlengdur, heilsugæslulæknum þar með fækkað úr fimm í fjóra).
          Ljósmæðrum hefur fækkað um eina (ekki ráðið í stað þeirrar sem hætti).
          Stöðum á rannsóknardeild hefur fækkað (ekki ráðið í stað þeirrar sem hætti).
          Bókara í 50% stöðu var sagt upp.
          Yfirvinna hefur verið skorin niður hjá stjórnendum og þeim sem hafa fasta yfirvinnu.
          Stofnanasamningar hafa verið endurskoðaðir og laun lækkuð.
          Sérkjörum geislafræðinga hefur verið sagt upp.
          Læknar hafa staðið bakvaktir með afslætti (standa fleiri vaktir en þeir fá greitt fyrir).
          Opnun á heilsugæslu á Flateyri hefur verið breytt, nú vinna starfsmenn þaðan víðar innan stofnunarinnar.
          Minnkun starfshlutfalls hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra um 5%.
          Stöðugildi ræstingarstjóra minnkað um 50%.
          Meiri hluta fastra akstursgreiðslna sagt upp. Föstum akstursgreiðslum sem eftir voru var sagt upp í byrjun árs 2010.

Heilbrigðisstofnunin Blönduósi.
          Bakvaktir vegna rannsókna og röntgens minnkaðar en mikil bakvaktarþjónusta var fyrir.
          Samningi um prestþjónustu sagt upp.
          Föst og unnin yfirvinna minnkuð.
          Ein læknastaða lögð niður en ráðið í afleysingar í vaktafríum, sumarfríum og námsleyfum.
          Viðhald og endurbætur skorið niður.
          Námskeiða- og ferðakostnaður minnkaður.
          Dregið úr minniháttar eignakaupum.
          Hagræðing vakta á deildum.
          Önnur hagræðing í verkkaupum.
Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki.
          Aðhald í yfirvinnugreiðslum og bann við afleysingum.
          Lækkun vaktaálags heilsugæslulækna.
          Afleysingar lækna takmarkaðar.
          Lækkun launa sjúkrahúslækna og deildarstjóra.
          Hagræðing í eldhúsi og ræstingu.
          Stöðugildum fækkað um 4–5 (störf í ræstingu, aðhlynningu og endurhæfingu).
          Ekki hefur verið ráðið í störf þeirra sem hafa hætt störfum hjá stofnuninni.
          Rannsóknir og röntgen, dregið úr bakvöktum.
          Fækkað um hálft stöðugildi ljósmóður og bakvöktum fækkað.
          Staða gæðastjóra lögð niður.
          Aðhald í verkkaupum og húsnæðiskostnaði.
          Almennt aðhald í útgjöldum og eignakaupum.


     3.      Hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar hjá þessum stofnunum, hverri fyrir sig?

Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
    Framlag til Heilbrigðisstofnunar Vesturlands lækkar um 153,4 millj. kr. (5,5%) á árinu 2010. Lækkunin skiptist með eftirfarandi hætti:
     Heilsugæslusvið: 26,2 millj. kr. (2,9%). Sameining heilbrigðisstofnana og heilsugæslustöðva á Vesturlandi.
     Sjúkrasvið: 86,3 millj. kr. (6,0%). Sameining heilbrigðisstofnana og heilsugæslustöðva á Vesturlandi ásamt St. Franciskusspítala
     Hjúkrunarsvið: 40,9 millj. kr. (9%). Sameining stofnana og fækkun hjúkrunarrýma um þrjú.
          Fastlaunasamningar gerðir við lækna sem voru með ferliverkasamninga.
          Aksturssamningar felldir niður.
          Staða fæðinga- og kvensjúkdómalæknis (80%) ekki nýtt átta mánuði ársins.
          Minnkuð stöðugildi hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, deildarritara, geislafræðinga, sjúkraþjálfa, ljósmæðra, iðjuþjálfa, skólahjúkrunar, sjúkraflutninga, bókara og í þvottahúsi. Fækkað um u.þ.b. átta stöðugildi.
          Starfsemi öldrunardeildar breytt frá og með 1. sept., stefnt að fækkun um 3–4 stöður.
          Vaktafyrirkomulag aðstoðarlækna endurskoðað (greiðsla lækkuð).
          Yfirvinna lækkuð á tæknideild og á skrifstofu.
          Staða rafvirkja lögð niður.
          Gæsluvakt II lögð af á Heilsugæslusviði á Akranesi og á Hvammstanga.
          Aksturssamningar heimahjúkrunar felldir niður – bílar keyptir.
          Stöður framkvæmdastjóra lagðar niður í Borgarnesi, Búðardal, Grundarfirði og Ólafsvík.
          Stöðu forstjóra á St. Fransciskuspítala, Hólmavík og Hvammstanga breytt í stöðu svæðisfulltrúa og laun lækkuð (biðlaun hafa áhrif á þessu ári).
          Staða bókara í Búðardal, á Hvammstanga og Hólmavík lögð niður.
          Þjónusta sjúkraflutninga á Heilbrigðisstofnun Vesturlands í endurskoðun vegna sameiningar.
          Samræmd símsvörun frá 15. febrúar.
          Greiðslur vegna grænna seðla á Hvammstanga færðar í laun.
          Vaktafyrirkomulag hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða St. Franciskusspítala í endurskoðun.
          Opnunartími skurðstofu minkaður um 4 klst. á viku.

Heilbrigðisstofnunin Patreksfirði.
    Framlag til Heilbrigðisstofnunarinnar Patreksfirði lækkar um 20,3 millj. kr. (7,5%) á árinu 2010. Lækkunin skiptist með eftirfarandi hætti:
     Heilsugæslusvið: 1,4 millj. kr. (1,3%).
     Sjúkrasvið: 0,9 millj. kr. (1,6%).
     Hjúkrunarsvið: 18 millj. kr. (17%). Lækkun framlaga vegna þriggja ónýttra hjúkrunarrýma.
          Breytingar á starfsháttum lækna frá og með 1. mars, í stað tveggja fastra lækna verður einn fastur læknir. Hin staðan er leyst með verktöku fjögurra lækna sem skipta starfinu á milli sín.
          Fastráðinn læknir fer í tveggja mánaða launalaust leyfi í sumar og læknir í verktöku leysir hann af og er launakostnaður lægri á tímabilinu.
          Aðhald. Fjárheimild til rannsókna og mötuneytis er skömmtuð.
          Laun lífeindafræðings lækkuð.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
    Framlag til Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða lækkar um 51,5 millj. kr. (4,9%) á árinu 2010. Lækkunin skiptist með eftirfarandi hætti:
     Heilsugæslusvið: 6,2 millj. kr. (2%). Horft er til hagræðingar innan heilsugæslu þegar Óshlíðargöng opna.
     Sjúkrasvið: 8,3 millj. kr. (1,8%).
     Hjúkrunarsvið: 37 millj. kr. (13,8%).
          Hjúkrunardeild á Flateyri verður lokað (þessi liður er til skoðunar í ráðuneyti).
          Dregið úr mönnun á legudeildum á Ísafirði.
          Dregið úr mönnun á hjúkrunardeild í Bolungarvík.
          Bolungarvíkur- og Ísafjarðarlæknishéruð verða sameinuð þegar Bolungarvíkurgöng verða opnuð.
          Áfram verður gætt aðhalds í rekstri og leitast við að halda allri mönnun í lágmarki.

Heilbrigðisstofnunin Blönduósi.
    Framlag til Heilbrigðisstofnunarinnar Blönduósi lækkar um 45,1 millj. kr. (10,5%) á árinu 2010. Lækkunin skiptist með eftirfarandi hætti:
     Heilsugæslusvið 2,5 millj. kr. (2,2%). Gert er ráð fyrir rekstrarhagræðingu með aukinni samvinnu stofnana á Norðurlandi.
     Sjúkrasvið 11,7 millj. kr. (12,5%). 3,5 millj. kr. vegna rekstrarhagræðingar með aukinni samvinnu stofnana á Norðurlandi og 9 millj. kr. vegna leiðréttingar fjárheimildar. Reiknilíkan sem stuðst er við þegar fjárheimildir til stofnana eru ákvarðaðar sýnir að framlög til Heilbrigðisstofnunarinnar Blönduósi eru hærri en fjárveitingar til sambærilegra stofnana. Fjárheimildir stofnunarinnar eru lækkaðar af þeim sökum í þremur áföngum, fyrst árið 2009.
     Hjúkrunarsvið 30,9 millj. kr. (13,8%). Reiknað er með að fækkað verði um 5 af 32 hjúkrunarrýmum á stofnunni sem reynslan sýnir að hafa verið vannýtt.
          Starfsmenn bráðadeildar FSA svara símtölum utan dagvinnutíma sem leiðir til færri útkalla lækna en verið hefur.
          Minnkun starfshlutfalla í aðhlynningu og ræstingu. Staða aðstoðarráðsmanns lögð niður með aðkomu Fasteigna ríkissjóðs.
          70% staða læknaritara lögð niður vegna samtengingar Sögukerfis á Norðurlandi. Starfsmaður færður til í starfi.
          Stjórnendum í hjúkrun fækkað úr fimm í þrjú.
          Sameining deilda og breytt vinnulag leiðir til þess að hægt er að hagræða í þvottahúsi (80% staða).
          Akstursgreiðslur starfsmanna aflagðar og fastri yfirvinnu sagt upp.
          Starfshlutföll minnkuð (20%) og breytt vinnulag á skrifstofum.
          Starf aðstoðarmanns sjúkraþjálfara verður lagt niður (70%) og starfsmanni í afþreyingu og föndri sagt upp (50%) en verkefnin flytjast á aðra starfsmenn.
          Breytingar verða gerðar á launakjörum lækna. Greiðslu fyrir græna seðla verður hætt og gæsluvakt II lögð af.
          Þjálfunarlaug verður lokað þegar kemur að árlegu viðhaldi.
          Hagræðing í innkaupum og aukið eftirlit með lyfjakaupum og rannsóknum.
          Reynt verður að komast hjá afleysingum vegna fría þar sem það á við.
          Breytingar á rekstri sjúkrabíla á Skagaströnd (til skoðunar í ráðuneyti).
          Ráðningarbanni verður viðhaldið og ekki ráðið í störf sem losna nema í algerum undantekningartilfellum.

Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki.
    Framlag til Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki lækkar um 95,8 millj. kr. (10,8%) á árinu 2010. Lækkunin skiptist með eftirfarandi hætti:
     Heilsugæslusvið, hækkun um 1,1 millj. kr. (0,6%). Gert er ráð fyrir rekstrarhagræðingu með aukinni samvinnu stofnana á Norðurlandi.
     Sjúkrasvið 9,0 millj. kr. (2,7%). Gert er ráð fyrir rekstrarhagræðingu með aukinni samvinnu stofnana á Norðurlandi.
     Hjúkrunarsvið 87,9 millj. kr. (23,6%). Reiknað er með að fækkað verði um 15 af 56 hjúkrunarrýmum á stofnunni sem reynslan sýnir að hafa verið vannýtt.
          Fækkað stöðugildum í ræstingu.
          Staða hjúkrunarfræðings á Hofsósi (100%) verður lögð niður en læknir mun eftir sem áður fara þangað einu sinni í viku (þessi liður er til skoðunar í ráðuneyti).
          Geðlækni (60%) sagt upp en gert ráð fyrir að þjónusta farandlæknis verði keypt að hluta til á móti.
          Farandlæknar, þ.e. barna-, endurhæfingar-, og meltingarlæknar, koma ekki aftur eftir sumarfrí.
          Greiðslum til lækna vegna grænna seðla verður sagt upp.
          Föst og unnin yfirvinna á skrifstofu, húsvarða og deildarstjóra skorin niður.
          Takmörkun á afleysingu.
          Bakvöktum ljósmæðra hætt (þessi liður er til skoðunar í ráðuneyti).
          Aðhald í röntgeni og rannsóknum.
          Áframhaldandi hagræðing í eldhúsi.
          Fækkun hjúkrunarfræðinga og breytt skipulag.
          Akstursgreiðslum sagt upp.
          Sjúkraliði í endurhæfingu fer í önnur störf innan stofnunar.
          Lækkun gæsluvakta nema.
          Almennt yfirvinnubann.