Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 471. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 813  —  471. mál.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um gjald fyrir ónýttar yfirdráttarheimildir.

Frá Birki Jóni Jónssyni.



     1.      Telur ráðherra að viðskiptabönkum eigi að vera heimilt að taka sérstakt gjald fyrir ónýttar yfirdráttarheimildir?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að fjármálastofnunum verði gert óheimilt að innheimta slíkt gjald?