Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 887, 138. löggjafarþing 68. mál: skipan ferðamála (einfaldari málsmeðferð og EES-reglur).
Lög nr. 28 31. mars 2010.
Þingskjal 887, 138. löggjafarþing 68. mál: skipan ferðamála (einfaldari málsmeðferð og EES-reglur).
Lög nr. 28 31. mars 2010.
Lög um breytingu á lögum um skipan ferðamála, nr. 73/2005.
1. gr.
A-liður 2. mgr. 9. gr. laganna orðast svo: hafa búsetu innan aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins eða aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum.2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. laganna:- 3. málsl. 1. mgr. fellur brott.
- 2. málsl. 2. mgr. orðast svo: Ferðamálastofa leggur mat á fjárhæð tryggingar á grundvelli fyrirliggjandi gagna og er heimilt að leita umsagnar endurskoðanda.
- Í stað orðanna „endurskoðaðan ársreikning“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: ársreikning áritaðan samkvæmt lögum um ársreikninga, nr. 3/2006.
- Í stað orðanna „að fenginni umsögn löggilts endurskoðanda“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: og er heimilt að óska eftir umsögn endurskoðanda.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 25. mars 2010.