Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 544. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 934  —  544. mál.




Frumvarp til laga



um virkjun neðri hluta Þjórsár.

Flm.: Ólöf Nordal, Árni Johnsen, Jón Gunnarsson, Ragnheiður E. Árnadóttir,


Illugi Gunnarsson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Ásbjörn Óttarsson,
Kristján Þór Júlíusson, Guðlaugur Þór Þórðarson.


1. gr.

    Iðnaðarráðherra skal veita Landsvirkjun virkjunarleyfi fyrir virkjanir í neðri hluta Þjórsár og skal Landsvirkjun hefja framkvæmdir hið fyrsta.
    Ákvörðun umhverfisráðherra frá 29. janúar 2010 um að synja staðfestingar skipulagsbreytingum sem snúa að virkjunum í neðri Þjórsá skal falla úr gildi.

2. gr.

    Þeir virkjanakostir sem skal nýta, sbr. 1. gr., og hafa þegar verið metnir út frá umhverfisáhrifum eru:
     A.      Hvammsvirkjun, 82 MW að afli,
     B.      Holtavirkjun, 53 MW að afli,
     C.      Urriðafossvirkjun, 130 MW að afli.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með frumvarpinu er kveðið á um að ráðist verði í framkvæmdir við virkjun neðri hluta Þjórsár í þeim tilgangi að efla atvinnulíf á sunnanverðu landinu. Verði frumvarpið að lögum skal hið fyrsta hefja framkvæmdir við þær þrjár virkjanir sem eru kenndar við Urriðafoss, Holt og Hvamm og skal nýta orkuna þaðan til uppbyggingar atvinnulífs á sunnanverðu landinu. Þessi áform um virkjanir hafa þegar uppfyllt öll skilyrði umhverfissjónarmiða og hagkvæmnissjónarmiða. Virkjanirnar hafa þegar farið í gegnum mat á umhverfisáhrifum án athugasemda, verið í tvígang settar í rammaáætlun og komið vel út í bæði skiptin, eru fjárhagslegar hagkvæmar og ýta undir íslenskt atvinnulíf.
    Sterk rök hníga að því að rétt sé að fullnýta tiltekið svæði áður en haldið er inn á ný svæði. Fjárfestingarstofa hefur lýst því yfir að fjöldamörg verkefni séu í undirbúningi t.d. á sviði gagnavera og smærri iðnaðar. Landsvirkjun tilkynnti 9. nóvember 2007 að stjórn fyrirtækisins hefði ákveðið að orkan úr neðri hluta Þjórsár ætti að fara til annarra verkefna en stóriðju. Í tilkynningunni segir: „Stjórn Landsvirkjunar telur mikilsvert að fyrirtækið fái sem hæst verð fyrir raforkuna, dreifi áhættu og auki fjölbreytni viðskiptavina sinna. Landsvirkjun hefur því ákveðið að hefja viðræður um raforkusölu við fyrirtæki sem hyggjast byggja upp netþjónabú á Íslandi. Einnig eru í undirbúningi viðræður við fyrirtæki á sviði kísilhreinsunar fyrir sólarrafala. Ekki er enn hægt að greina frá því hver þessi fyrirtæki eru. Líkleg staðsetning þessarar starfsemi verður á Suðurlandi og Reykjanesi. Áhersla Landsvirkjunar á netþjónabú og sólarkísil byggist á því að vænta má hærra raforkuverðs í þeim viðskiptum en við aðra stórkaupendur. Landsvirkjun mun þess vegna ekki ganga til samningaviðræðna að sinni við fyrirtæki sem hyggja á bygginu nýrra álvera á Suður- eða Vesturlandi.“
    Staðan í íslensku efnahagslífi er með allt öðrum hætti nú en haustið 2007 og er brýnna en nokkru sinni fyrr að tryggja orku til fjölbreyttra verkefna eins og vísað er til í framangreindri samþykkt stjórnar Landsvirkjunar. Augljóst er að ekki verður farið í uppbyggingu gagnavera og slíkra verkefna á sunnanverðu landinu nema orka frá Þjórsá sé tryggð.
    Ríkisstjórnin hefur ekki komið sér saman um hvernig haga skuli orkunýtingu í landinu þrátt fyrir að hafa kveðið á um eftirfarandi í stöðugleikasáttmálanum frá 25. júní 2009: „Ríkisstjórnin mun greiða götu þegar ákveðinna stórframkvæmda sbr. þjóðhagsáætlun, s.s. framkvæmda vegna álvera í Helguvík og Straumsvík. Undirbúningsvinnu verði hraðað vegna áforma sem tengjast fjárfestingu í meðalstórum iðnaðarkostum, s.s. gagnaverum og kísilflöguframleiðslu. Kappkostað verður að engar hindranir verði af hálfu stjórnvalda í vegi slíkra framkvæmda eftir 1. nóvember 2009.
    Einnig verði unnið skipulega að úrvinnslu áforma um aðrar stórfjárfestingar í atvinnulífinu þannig að taka megi ákvarðanir sem fyrst um hugsanlegan framgang þeirra. … Sveitarfélög og önnur stjórnvöld tryggi að farið verði að tímafrestum við gerð skipulags og allar leyfisveitingar og greitt verði fyrir nýjum fjárfestingum eins og kostur er.“
    Þann 29. janúar 2010 synjaði umhverfisráðherra skipulagsbreytingum sem snúa að virkjunum í neðri Þjórsá. Var annars vegar um að ræða tillögu Skeiða- og Gnúpverjahrepps um breytingu á aðalskipulagi hreppsins og hins vegar aðalskipulagi Flóahrepps 2006–2018, en ráðherra samþykkti skipulagið að öðru leyti en því sem laut að virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Þessar ákvarðanir ráðherra höfðu alvarlegar afleiðingar á áform fyrir virkjun í neðri hluta Þjórsár. Það er nauðsynlegt og eðlilegt að Alþingi vindi ofan af þeirri ákvörðun ráðherra með því að kveða á um virkjun neðri hluta Þjórsár, enda hníga öll rök að því að ráðist verði í framkvæmdirnar.
    Skráð atvinnuleysi í febrúar 2010 var 9,3% samkvæmt heimildum Vinnumálastofnunar eða að meðaltali 15.026 manns og jókst það um 2,2% að meðaltali frá janúar. Á sama tíma á árinu 2009 var atvinnuleysi 8,2%. Þá eru ótaldar þúsundir manna sem flust hafa burt af landinu. Það er brýnt að sporna við atvinnuleysi með öllum tiltækum ráðum og er skynsamleg nýting orkuauðlindanna mikilvægt lóð á vogaskálarnar. Aðilar vinnumarkaðarins kalla mjög eftir því að ákvarðanir verði teknar á þessu sviði og síðast 29. mars 2010 hvatti miðstjórn Alþýðusambands Íslands til þess að áfram verði haldið í orkunýtingu.
    Í ljósi gríðarlegs atvinnuleysis og þess hversu brýn þörf er fyrir atvinnuuppbyggingu hér á landi er rétt að ráðast í þessar framkvæmdir enda hafa viðamiklar rannsóknir verið gerðar. Ekki er unnt að selja orku sem ekki er til og munum við fæla frá landinu þá sem vilja fjárfesta hér á landi ef ekki er unnt að virkja hér. Flutningsmenn telja að lokum rétt að árétta að hér verði hvergi slakað á kröfum í umhverfismálum enda hefur þegar farið fram mat á umhverfisáhrifum þessara verkefna og þau hafa komið afar vel út úr rammaáætlun. Ekki skal heldur slakað á umhverfiskröfum til væntanlegra notenda raforkunnar.