Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 550. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 940  —  550. mál.




Fyrirspurn



til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um fyrirhugaða starfsemi ECA á Íslandi.

Frá Margréti Tryggvadóttur.



     1.      Hverjir eru eigendur ECA? Hvernig er stjórn félagsins skipuð?
     2.      Hvers konar starfsemi er fyrirhuguð á vegum ECA á Íslandi?
     3.      Hvenær hófust viðræður milli ECA og hins opinbera og að frumkvæði hvers hófust þær?
     4.      Hver heldur utan um málið af hálfu hins opinbera og veitir upplýsingar um framvindu þess?
     5.      Hvenær er áformað að rekstur ECA hefjist á Íslandi? Á hvaða stigi er málið nú?
     6.      Er eftir að skera úr um einhver vafaatriði málsins vegna og ef svo er, hver eru þau?
     7.      Hvernig samræmist fyrirhuguð starfsemi ECA gildandi stjórnarsáttmála?



Skriflegt svar óskast.