Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 607. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1059  —  607. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um rekstur ÁTVR árin 2002–2010.

Frá Gunnari Braga Sveinssyni.



     1.      Hver er markaðskostnaður ÁTVR árin 2002–2010, þ.e. við auglýsingar, bæklinga, ráðgjöf, hönnun, birtingar og þess háttar?
     2.      Hver er húsnæðiskostnaður ÁTVR á framangreindu tímabili og hvað skýrir breytingar á kostnaðinum á þessum árum að mati ráðherra? Hver er kostnaður ÁTVR af breytingum á vínbúðum, innan og utan?
     3.      Hver er þróun rekstrarkostnaðar ÁTVR á tímabilinu og hvað skýrir breytingar á kostnaðinum að mati ráðherra?
    Svar óskast sundurliðað eftir árum (áætlað 2010).


Skriflegt svar óskast.