Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 636. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1127  —  636. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um áhrif skattahækkana á eldsneytisverð.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hversu mikill hluti af hækkun eldsneytisverðs frá ársbyrjun 2009 á rætur sínar að rekja til aukinna skatta og gjalda á eldsneyti á þessu tímabili?
     2.      Hvað er áætlað að verð á bensíni og dísilolíu væri nú án þessara breytinga á skattheimtu og gjaldtöku?