Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 642. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1157  —  642. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um gengistryggð lán hjá Byggðastofnun.

Frá Gunnari Braga Sveinssyni.



     1.      Hversu margir aðilar eru með gengistryggð lán hjá Byggðastofnun?
     2.      Hvað hafa þau lán hækkað mikið frá hruni bankakerfisins?
     3.      Stendur til að gera Byggðastofnun kleift að bregðast við hækkun gengistryggðra lána með svipuðum hætti og aðrar fjármálastofnanir hafa boðað?
     4.      Hefur þörfin fyrir slíka leiðréttingu á lánum stofnunarinnar verið metin?


Skriflegt svar óskast.