Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1265, 138. löggjafarþing 554. mál: atvinnuleysistryggingar og húsaleigubætur (gildistími ákvæðis um hlutfallslegar atvinnuleysisbætur o.fl.).
Lög nr. 70 22. júní 2010.
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum.
Milliríkjasamningar.
Við framkvæmd laga þessara skal tekið tillit til milliríkjasamninga á sviði almannatrygg inga og félagsmála sem Ísland er aðili að.
Atvinnuleysistryggingasjóður skal endurgreiða þeim atvinnuleitendum sem hafa fengið skertar atvinnuleysisbætur eftir 1. mars 2009 vegna elli- og örorkulífeyrisgreiðslna úr séreignarlífeyrissjóðum á grundvelli laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, sem nemur fjárhæð skerðingarinnar. Skilyrði er að viðkomandi atvinnuleitendur hafi óskað eftir endurgreiðslu úr Atvinnuleysistryggingasjóði fyrir 1. september 2010.
II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 138/1997, um húsaleigubætur, með síðari breytingum.
Þingskjal 1265, 138. löggjafarþing 554. mál: atvinnuleysistryggingar og húsaleigubætur (gildistími ákvæðis um hlutfallslegar atvinnuleysisbætur o.fl.).
Lög nr. 70 22. júní 2010.
Lög um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um húsaleigubætur.
1. gr.
Orðin „og séreignarsjóðum“ í 2. málsl. 1. mgr. 36. gr. laganna falla brott.2. gr.
Í stað orðanna „í a.m.k. þrjá mánuði“ í fyrri málslið 3. mgr. 47. gr. laganna kemur: a.m.k. síðasta mánuðinn.3. gr.
Á eftir 63. gr. laganna kemur ný grein, 63. gr. a, sem orðast svo ásamt fyrirsögn:4. gr.
Í stað orðanna „30. júní 2010“ í 7. mgr. ákvæðis til bráðabirgða V í lögunum kemur: 31. desember 2010.5. gr.
Í stað orðanna „30. júní 2010“ í 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða VI í lögunum kemur: 31. desember 2010.6. gr.
Ákvæði til bráðabirgða VIII í lögunum verður svohljóðandi:Atvinnuleysistryggingasjóður skal endurgreiða þeim atvinnuleitendum sem hafa fengið skertar atvinnuleysisbætur eftir 1. mars 2009 vegna elli- og örorkulífeyrisgreiðslna úr séreignarlífeyrissjóðum á grundvelli laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, sem nemur fjárhæð skerðingarinnar. Skilyrði er að viðkomandi atvinnuleitendur hafi óskað eftir endurgreiðslu úr Atvinnuleysistryggingasjóði fyrir 1. september 2010.
7. gr.
Við 2. mgr. 9. gr. laganna bætist nýr málsliður sem orðast svo: Þá teljast elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr séreignarlífeyrissjóðum á grundvelli laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, ekki til tekna skv. 1. mgr.8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 10. júní 2010.