Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 702. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1524 — 702. mál.
dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn Þórs Saaris um fjölda fullnustugerða.
Hversu margar nauðungarsölur og vörslusviptingar, þ.m.t. beinar aðfarargerðir, hafa verið framkvæmdar frá 6. október 2008 á grundvelli verðtryggðra lána sem bundin eru vísitölu neysluverðs, gengistryggðra lána og lána í erlendri mynt? Sundurliðun óskast eftir helstu lánategundum annars vegar og lánum einstaklinga og fyrirtækja hins vegar.
Á 137. löggjafarþingi svaraði þáverandi dóms- og kirkjumálaráðherra fyrirspurn frá Ólöfu Nordal um fjárnám og nauðungarsölu, sbr. þskj. 115 í máli nr. 45. Í því svari er að finna upplýsingar um að nauðungarsölubeiðnir hafi verið á sjöunda þúsund hvert ár á tímabilinu 2006–2008. Þar kemur einnig fram að tölvukerfi sýslumannsembættanna gefur ekki kost á að kalla eftir upplýsingum með ítarlegum hætti.
Svör við fyrirspurninni sem hér er til umfjöllunar liggja ekki fyrir, enda er ekkert skráð um vaxtakjör og verðtryggingu þegar nauðungarsölumál eru stofnuð.
Minnt er á að í 6. mgr. 49. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, segir að ef óskað er skriflegs svars við fyrirspurn sendir ráðherra forseta það að jafnaði eigi síðar en tíu virkum dögum eftir að fyrirspurn var leyfð. Er enda við það miðað að fyrirspurn skuli vera skýr, um afmörkuð atriði og mál sem ráðherra ber ábyrgð á og sé við það miðað að hægt sé að svara henni í stuttu máli.
Til að komast að niðurstöðum um það sem fyrirspurn háttvirts þingmanns lýtur að þyrftu starfsmenn sýslumannsembættanna að skoða veðskuldir á bak við öll nauðungarsölumál á tveggja ára tímabili. Á bak við hvert mál liggja gjarnan nokkrar beiðnir um nauðungarsölu á viðkomandi eign sem styðjast við mismunandi lánasamninga eða annars konar kröfuréttindi. Þyrfti því að greina þúsundir eða tugi þúsunda veðskjala. Slík greining tæki allnokkra mannmánuði eða jafnvel ársverk. Ljóst er því að umbeðinna upplýsinga verður ekki aflað innan þess tímaramma sem gert er ráð fyrir að ráðuneyti hafi til að afla svara við fyrirspurnum þingsins né er til staðar sá starfskraftur sem til þarf í slíka rannsókn.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1524 — 702. mál.
Svar