afnám gjaldeyrishafta.
Frú forseti. Þegar hér voru sett gjaldeyrishöft voru þau kynnt sem neyðarráðstöfun til mjög skamms tíma. Eins og menn vita eru gjaldeyrishöftin enn í gildi og hafa verið hert nokkrum sinnum frá því að þau voru sett og nýlega var frestað kynningu á áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna.
Þau hafa reyndar líka verið notuð töluvert í pólitískum tilgangi sem hótun m.a. í Icesave-málinu þangað til í ljós kom að áframhaldandi gjaldeyrishöft væru reyndar forsenda þeirra samninga sem nú er verið að tala fyrir. Þessu var sem sagt öfugt farið við þær hótanir sem höfðu verið hafðar í frammi. Þá er hæstv. efnahagsráðherra farinn fram úr sér um nokkur skref og farinn að nota gjaldeyrishöftin sem hótun um að menn verði að taka upp evru hið snarasta. Nú er ljóst að hvað sem líður Evrópusambandsumsókn verður ekki tekin upp evra á Íslandi í gegnum Evrópusambandið næstu árin. Tékkar sjá fyrir sér að geta í fyrsta lagi tekið upp evru 2018 og er væntanlega lengra að bíða eftir að Íslendingar geti tekið upp evru.
Engu að síður fer hæstv. efnahagsráðherra um víðan völl og í viðtöl við erlenda miðla og lýsir því yfir að gjaldmiðill landsins sé ónýtur og verði ónýtur um alla framtíð. Alveg þangað til tekin verði upp evra þurfi menn að viðhafa gjaldeyrishöft, ástandið sé þannig að hér sé allt í kaldakoli. Svona kynnir efnahagsráðherra landsins stöðu efnahagsmála á Íslandi um leið og ríkisstjórnin talar um að það sem við þurfum sé aukin erlend fjárfesting.
Það eru líklega tveir menn, efnahagsráðherra og seðlabankastjóri og hugsanlega hæstv. fjármálaráðherra, sem geta ekki leyft sér að tala með þessum hætti, aldrei nokkurn tíma. Enginn ráðherra í nokkru einasta Evrópuríki öðru en Íslandi mundi tala með þessum hætti um eigin gjaldmiðil. Hvað finnst hæstv. fjármálaráðherra um framgöngu hæstv. efnahagsráðherra? Er hann sammála mati hans og finnst honum í lagi að hann komi fram með þessum hætti í erlendum fjölmiðlum?