gjaldeyrishöft og fjármál ríkissjóðs.
Frú forseti. Það getur vel verið að hæstv. fjármálaráðherra telji það sniðugt að gera meðferð geðlyfja að einhverju aðhlátursefni í þessum sal og bera það upp á þingmenn að þeim veiti unnvörpum ekki af þeim en ég hef ekki húmor fyrir slíku.
Ég varð ekki var við það að hæstv. ráðherra neitaði því, enda er það tölulega sannað, að við hefðum á árinu 2009 þurft að greiða 37 þúsund milljónir í vexti vegna Svavarssamningsins. Við hefðum líka þurft að gera það árin 2010 og 2011. (Gripið fram í.) Nú spyr ég hæstv. ráðherra: Hver væri staðan ef við hefðum þurft að greiða þessa fjármuni í erlendum gjaldeyri? Hver væri staða gjaldeyrisins okkar vegna þeirra greiðslna?
Ég spyr líka hæstv. ráðherra hvort hann telji ekki í ljósi reynslunnar, og að menn eigi að geta viðurkennt það sem þeir gera rangt, ástæðu til að hann biðji íslensku þjóðina afsökunar á því hvernig ríkisstjórnin hefur staðið að þessu máli. Hér er um þvílíkar upphæðir að ræða að heilt velferðarkerfi hefur verið undir (Forseti hringir.) vegna þeirra upphæða. Mér finnst að ráðherrann ætti að vera maður að meiri og segja við þjóðina að hann hafi gert mistök (Forseti hringir.) og biðjast afsökunar á þeim. (Gripið fram í.)