Lengd þingfundar

Mánudaginn 30. maí 2011, kl. 11:41:02 (0)


139. löggjafarþing — 135. fundur,  30. maí 2011.

lengd þingfundar.

[11:41]
Horfa

Árni Johnsen (S):

Virðulegi forseti. Það tíðkaðist áður fyrr að skip voru byggð á strönd við fjöruborð en þau voru aldrei sjósett fyrr en búið var að setja byrðinginn á og það var flot í skipinu. Tillögur hæstv. ríkisstjórnar og hæstv. sjávarútvegsráðherra eru fullkomlega vanbúnar. Hæstv. sjávarútvegsráðherra stendur ásamt forsætisráðherra á feysknum kili sem hefur ekkert flot og engan burð. Slíkt mál er ekki boðlegt til umræðu á Alþingi. Þess vegna á ekki að taka það til umræðu eins og stendur, það á að klára eðlilegan undirbúning að byggingu þess skips sem ríkisstjórnin vill setja á flot.