Almenn hegningarlög

Fimmtudaginn 04. nóvember 2010, kl. 18:33:29 (0)


139. löggjafarþing — 20. fundur,  4. nóv. 2010.

almenn hegningarlög.

97. mál
[18:33]
Horfa

dómsmála- og mannréttindaráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940. Frumvarpið var áður lagt fram á 138. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu. Í tilefni af fyrirhugaðri aðild Íslands að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu frá 31. október 2003 er í frumvarpinu lögð til breyting á lögsöguákvæði 6. gr. almennra hegningarlaga þannig að við ákvæðið bætist nýr töluliður er heimili að maður verði sóttur til saka eftir íslenskum hegningarlögum fyrir brot sem falla undir samning Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu, enda þótt þau séu framin utan íslenska ríkisins og án tillits til þess hver er að þeim valdur. Er það gert til þess að fullnægja skilyrðum 42. gr. samningsins.

Ákvæði samningsins sem mesta þýðingu hafa fyrir refsilöggjöfina er að finna í III. og V. kafla hans. Er þar m.a. kveðið á um refsinæmi þess að bjóða innlendum eða erlendum opinberum starfsmanni mútur sem og þess ef slíkir aðilar þiggja mútur. Að sama skapi mælir samningurinn fyrir um refsinæmi peningaþvættis mútugreiðslna innan einkageirans og áhrifakaupa svo að eitthvað sé nefnt en um áhrifakaup er að ræða ef embættismaður, eða annar maður sem hefur raunveruleg eða ætluð áhrif á ákvarðanatöku í tilteknu máli, skiptir þeim áhrifum út fyrir óviðeigandi ávinning frá aðila sem vill hafa áhrif á ákvarðanatökuna.

Í almennum hegningarlögum er þegar kveðið á um refsinæmi þeirra verknaða sem nefndir eru í samningnum, og kallar aðild að samningnum ekki á aðrar breytingar á lögum á forræði dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins en þá einu sem hér hefur verið gerð grein fyrir.

Rétt er að geta þess að þann 16. júní sl. voru samþykkt á Alþingi lög nr. 86/2010, um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands og fleiri lögum, og var þeim ætlað að skapa lagalega umgjörð um siðareglur fyrir ríkisstarfsmenn og ráðherra. Mæta ákvæði þeirra laga áskilnaði sem gerður er í 6. og 8. gr. samningsins. Þá veitti Alþingi með þingsályktunartillögu á síðasta löggjafarþingi jafnframt heimild til aðildar að samningnum og fylgdi samningurinn þingsályktunartillögunni.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efnisákvæðum frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjarnefndar og 2. umr.