Þing Norðurlandaráðs -- ofanflóðasjóður -- heilbrigðismál o.fl.

Föstudaginn 05. nóvember 2010, kl. 11:19:06 (0)


139. löggjafarþing — 21. fundur,  5. nóv. 2010.

störf þingsins.

[11:19]
Horfa

Róbert Marshall (Sf):

Virðulegi forseti. Ég tek undir þá hugmynd sem hv. þingmaður leggur fram án þess að ég vilji fara í sérstaka efnislega umfjöllun um hana hér. Hún er góðra gjalda verð og þess virði að skoða. En á Austurvelli í gær ómaði krafan um utanþingsstjórn sem er að mínu mati fyrst og fremst krafa um breytt vinnubrögð stjórnmálaflokkanna, stjórnar og stjórnarandstöðu. Sú krafa hefur jafnframt verið hávær á þingi, samráð og samningar um vinnubrögð, skuldamál, atvinnumál, og fjárlagafrumvarpið séu farsælli á þeim erfiðu tímum sem við göngum nú í gegnum sem þjóðfélag. Í stjórnarliðinu hefur líka verið mikill þrýstingur á ríkisstjórnina að svara þessu kalli og bregðast við óskum um aukið samráð og samstarf stjórnarandstöðu. En því miður hefur stjórnarandstaðan sagt eftir þá fundi sem haldnir hafa verið um hin ýmsu mál, eins og t.d. skuldamál heimilanna og atvinnumálin, að ríkisstjórnarflokkarnir hafi ekkert nýtt haft fram að færa á þeim fundum — eins og það hafi verið einhver spurning um það, að ríkisstjórnin sé komin í öngstræti eða þá að nú sé verið að endurtaka einhvern leik til þess að flækja stjórnarandstöðuna í málið.

Auðvitað eru menn í alvöru að reyna að taka upp ný vinnubrögð og bjóða stjórnarandstöðunni til samráðs um þau erfiðu viðfangsefni sem blasa við.

Svo heyrast þau viðbrögð að það megi bara leysa málin ef fulltrúar stjórnarandstöðunnar fá ráðherrastóla og að mynduð verði þjóðstjórn. Ef taka á upp ný vinnubrögð af hálfu ríkisstjórnarinnar verður stjórnarandstaðan að gera það líka. Þetta er tvístefnugata og á grundvelli slíks samstarfs gæti útvíkkun stjórnarsamstarfsins eða breytinga á því mynstri (Forseti hringir.) orðið mjög eðlilegur valkostur.