endurskoðun laga um stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Eins og við vitum hefur staðið fyrir dyrum um allnokkra hríð að gera breytingar á fiskveiðistjórnarkerfi okkar landsmanna að afloknu samráði sem staðið hefur í rúmt ár og er nú lokið. Um þessar mundir berast tíðindi úr ýmsum byggðarlögum, alvarleg tíðindi af fjöldauppsögnum vegna erfiðrar stöðu margra fiskvinnslufyrirtækja sem er bein afleiðing af því kvótakerfi sem við búum við og sölu á aflaheimildum út úr byggðarlögum, eins og hefur gerst t.d. á Flateyri þar sem núna eru mjög miklir erfiðleikar. Það eru ýmsar blikur á lofti um að skuggahliðar kvótakerfisins séu farnar að bíta ansi sárt í byggðum landsins.
Því spyr ég hæstv. sjávarútvegsráðherra í ljósi þess að samráðsferlinu með hagsmunaaðilum sjávarútvegsins er nú lokið og vinna að fara af stað í ráðuneytinu við frumvarpsskrif að tilhlutan embættismanna ráðuneytisins í samráði við stjórnarflokkana: Hvaða tímamörk sér hæstv. ráðherra fyrir sér varðandi verklok þeirrar vinnu? Hvernig sér hann fyrir sér að staðið verði að þessu verklagi þar til yfir lýkur og hvenær má búast við því að þingheimur fái frumvarp í hendur til meðhöndlunar á þeim breytingum sem fram undan eru?