hækkun vaxtaálags á fyrirtæki.
Virðulegi forseti. Nú berast fréttir af því að fjármálastofnanir séu óðum að hækka áhættuálag sitt á íslenskt atvinnulíf. Ég er með dæmi um mann sem rekur ekki stórt fyrirtæki en skuldar einhver hundruð milljóna. Hann hefur staðið algerlega í skilum með allar sínar skuldbindingar þrátt fyrir að hafa verið með erlent gengislán sem hækkaði og stökkbreyttist eins og við þekkjum öll. Hann hefur staðið í skilum með það. Nú bar svo við að bankinn hans tilkynnti honum að hann mundi hækka vaxtaálagið hjá honum um 300–400 punkta. Það varð til þess að þessi góði maður hætti að geta staðið í skilum, leitaði til bankans og bað um að lánið yrði að hluta afskrifað.
Annað dæmi er ég með af fyrirtæki sem er í viðskiptum við góðan sparisjóð. Þar var áhættuálagið hækkað um 500 punkta og á nákvæmlega sama hátt var um að ræða fyrirtæki sem hafði staðið í skilum. Það er ljóst að verið er að ýta atvinnulífinu, litlu og meðalstóru fyrirtækjunum, yfir í vanskil sem mun leiða til enn frekari vandamála á þessu sviði. Það mun minnka fjárfestingu og atvinnu. Því langar mig til að spyrja hæstv. efnahagsráðherra hvort ráðuneyti hans hafi metið þau áhrif sem þetta mun hafa á fjárfestingu og hvernig það mun síðan leiða til frekara (Forseti hringir.) atvinnuleysis.