Fjárlög 2011

Miðvikudaginn 15. desember 2010, kl. 15:01:57 (0)


139. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[15:01]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Þór Saari) (Hr):

Frú forseti. Við ræðum framhaldsnefndarálit Hreyfingarinnar eftir 2. umr. fjárlagafrumvarpsins. Að okkar mati var þetta fjárlagafrumvarp afgreitt með allt of miklu hraði og allt of lítilli yfirlegu eins og því miður svo margt annað í þinginu. Mér finnst rétt að leggja áherslu á að þingið reyni að bæta verklag sitt við vinnslu mála, ekki síst svona mikilvægra mála.

Þriðji minni hluti hefur farið vandlega yfir þær breytingar sem gerðar eru af hálfu meiri hlutans og lýsir enn og aftur furðu sinni á vinnubrögðum og ákvarðanatökum hans. Þrátt fyrir gagnrýni hefur tekju- og útgjaldaáætlun fjárlagafrumvarpsins og þær þjóðhagsforsendur sem liggja henni til grundvallar ekki verið endurskoðaðar og byggjast enn á óraunhæfum hagvexti. Það er ekki líklegt að fyrirhugaðar skattahækkanir skili sér í auknum tekjum til ríkissjóðs. Það er hætt við að þessar skattahækkanir muni einfaldlega leiða til enn frekari samdráttar en þegar hefur orðið þar sem þær þýða að ráðstöfunartekjur heimilanna munu skerðast. Í þessu samhengi er vert að benda á að ef hugmyndin er að auka eftirspurn og einkaneyslu, eins og gert er ráð fyrir í þjóðhagsspánni, þ.e. að hagvöxturinn muni koma úr henni, er myndarleg niðurfærsla á verðtryggðum höfuðstól íbúðalána heimilanna miklu líklegri til að leiða til þeirrar auknu eftirspurnar sem ætlunin er að ná fram í frumvarpinu og hefði jafnframt mjög góð sálræn áhrif á heimilin þar sem bjartsýni þeirra á framtíðina mundi aukast öfugt við það sem aukin skattheimta gerir.

Í svari efnahags- og viðskiptaráðherra 9. desember sl. á þskj. 465 við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur, þingmanns Hreyfingarinnar, segir orðrétt um áhrif skattahækkana á vísitölu neysluverðs, með leyfi forseta:

„Áhrif skattahækkana á vísitölu neysluverðs eru um 1,26% frá febrúar 2009 til október 2010 samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Það þýðir að verðtryggð lán íslenskra heimila hækkuðu sem því nemur. Samkvæmt skýrslu sérfræðingahóps um skuldavanda heimilanna voru verðtryggð fasteignalán heimilanna um 1.236 milljarðar kr. 1. október 2010 og því nemur hækkunin um 15,6 milljörðum kr. á tímabilinu.“ — Þetta er vegna skattahækkana ríkisstjórnarinnar. Hér er eingöngu verið að tala um fasteignalán heimilanna, ekki önnur lán sem eru þriðjungur af þessum 1.200 milljörðum kr. til viðbótar. — „Almenn vörugjöld eru ekki meðtalin þar sem Hagstofan greinir áhrif þeirra ekki með beinum hætti í vísitölunni.“

Í sama svari kemur einnig fram að skattahækkanir á fyrirtæki hafi hækkað verðtryggð lán fyrirtækja um 2,6 milljarða kr.

Það eru fleiri dæmi um alvarlegar rökvillur í lagasetningu, svo sem fyrirliggjandi frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á vörugjöldum bifreiða. Þær breytingar eru fyrirhugaðar á vörugjöldum og verða með tengingu við kolefnislosun þeirra og eru að okkar mati algjörlega óraunhæfar og órökréttar þar sem í frumvarpinu er gert ráð fyrir 29 undanþáguflokkum. Í undanþáguflokkunum eru allir þeir sem keyra mest og menga mest. Þar má nefna vöruflutningabíla, dráttarbíla, leigubíla, rútur og bílaleigubíla sem ásamt öðrum undanþágum gerir það að verkum að nánast allt atvinnulífið er undanþegið, skattstofninn þrengist og skatturinn lendir nánast alfarið á fjölskyldum og einstaklingum sem þurfa að keyra í vinnuna og út í búð. Hér er fjármálaráðherra búinn að gefast algjörlega upp fyrir sérhagsmunahópum og almenningur borgar brúsann. Það eru einfaldlega engin haldbær rök fyrir því að flutningabílar sem menga gríðarlega eða erlendir ferðamenn á bílaleigubílum, svo fá dæmi séu tekin, séu undanskildir kolefnisskatti. Hér er því ekki um stefnubreytingu í skattheimtu að ræða eins og ráðherrann vill telja fólki trú um nema að því leyti að það er verið að færa skattstofninn í meira mæli yfir á almenning og láta undan þrýstingi frá sérhagsmunahópum undir yfirskini umhverfisstefnu. Þetta er ekki fyrsta frumvarpið af þessu tagi sem kemur frá formanni Vinstri grænna.

Auknir skattar á heimilin eru erfið viðbót við þær hremmingar sem þegar hafa dunið á þeim og að sama skapi er tryggingagjaldið á fyrirtækjunum í raun gjald fyrir að hafa fólk í vinnu sem getur takmarkað frekar vilja og möguleika til mannaráðninga. 3. minni hluti telur því brýnt að leita annarra leiða til að rétta við hag ríkissjóðs en þeirra sem fyrirhugaðar eru í fyrirliggjandi frumvarpi og leggur 3. minni hluti til að í stað þeirra skattahækkana og niðurskurðar útgjalda í heilbrigðis-, velferðar- og menntamálum sem gert er ráð fyrir skuli leitast við að afla ríkissjóði tekna sem hér segir:

Í fyrsta lagi að tekið verði upp auðlindagjald af raforkusölu til stóriðju í stað sérstaks skatts af allri seldri raforku. Gjald þetta verði 1 kr. á kílóvattstund af seldri raforku. Miðað við tölur Orkustofnunar um raforkusölu til stóriðju gæti þetta gjald skilað tekjum upp á 12,4 milljarða kr. á ári. Þar sem raforkusala til járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga er nánast meitluð í stein þarf að leitast við að útfæra auðlindagjaldið til járnblendiverksmiðjunnar sem hlutfall af útflutningsverðmæti verksmiðjunnar þannig að það nemi samsvarandi upphæð. Lagt er til að dregið verði úr fyrirhuguðum niðurskurði í útgjöldum til heilbrigðis-, velferðar- og menntamála til samræmis við þetta.

Í öðru lagi er lagt til að tekið verði upp auðlindagjald á úthlutaðar aflaheimildir til fiskveiða. Gjald þetta verði að meðaltali 50 kr. á úthlutað kíló. Miðað við úthlutaðar aflaheimildir ársins 2009/2010 gæti gjaldið skilað tekjum upp á u.þ.b. 18,3 milljarða kr. á ári. Lagt er til á móti að fyrirhugaður niðurskurður í útgjöldum til heilbrigðis-, velferðar- og menntamála verði minnkaður til samræmis við þetta og að það sem út af stendur verði notað til lækkunar tryggingagjalds.

Slík skattheimta sem að framan greinir er hlutlaus fyrir heimilin og leggst á þær greinar atvinnulífsins sem standa best allra í dag vegna lækkunar á gengi krónunnar. Hér er einnig um að ræða réttláta skattlagningu í þeim skilningi að þessar atvinnugreinar nota auðlindir landsins án endurgjalds, auðlindir sem eru sameign allrar þjóðarinnar. Auk þess er miklu auðveldara að innheimta auðlindagjald með þessum hætti en með einhverjum hugmyndum um tekjuskatt eða veiðileyfagjald sem hlutfall af hagnaði.

Hvað varðar útgjaldahlið frumvarpsins er augljóst að alvarlegir meinbugir eru á starfsemi Alþingis þegar kemur að útgjaldahlið fjárlaga. Nefndarmenn eru vikum saman með viðtöl við fólk frá alls konar félögum og stofnunum og við einstaklinga sem koma á fund nefndarinnar til að biðja um peninga. Þetta hef ég oft gagnrýnt og margir nefndarmenn eru kannski ekki fyllilega sáttir við fyrirkomulagið heldur, en þeim gengur illa að breyta út af vananum og virðist þetta vera áfram eðlileg framvinda mála. Það mátti oft heyra á máli nefndarmanna að menn yrðu að snúa bökum saman fyrir sitt kjördæmi. Við gerð síðustu fjárlaga, í fyrra, þegar gestir komu á fund nefndarinnar og sögðust vera spákonur, skrímslasérfræðingar og mývetnskir jólasveinaáhugamenn gerði 3. minni hluti sér ekki grein fyrir því að alvara fylgdi máli heldur reiknaði með að hér væri enn eitt dæmið um hina alræmdu íslensku ofurkurteisi að ræða og að hefð væri fyrir því að hlusta á alla. Fulltrúar meiri hlutans ákváðu hins vegar að taka þetta fólk alvarlega, afhenda því milljónir af skattfé landsmanna og deila því sem jafnast hver í sitt kjördæmi. Þetta fyrirkomulag með samsvarandi afgreiðslu hefur haldið áfram við fjárlagagerðina í ár og nú eru gæluverkefnin til kjördæmanna sem nefndarmenn sjálfir úthluta a.m.k. 120 ef ekki fleiri og upphæðirnar skipta hundruðum milljóna.

Meira að segja vernd íslenskra fornleifa er orðin háð geðþóttaákvörðunum fjárlaganefndar sem telur sig hafa sérfræðiþekkingu á því hvernig á að forgangsraða verkefnum á sviði fornleifaverndar. Þetta er furðulegt þegar haft er í huga að enginn nefndarmanna er menntaður á sviði fornleifafræði og greinilegt af umræðum í nefndinni að aðferðafræði fornleifafræðinnar er nefndarmönnum framandi hugsun. Á meðan ómetanlegar fornleifar skolast burtu af ágangi sjávar, rennandi vatns eða veðrunar sökum fjárskorts fá sérstök verkefni á áhugasviði og áhugasvæði nefndarmanna meiri hlutans sérstaka úthlutun.

Það er með þetta eins og fjölmarga aðra útgjaldaliði í tillögum meiri hlutans að hér er ekki endilega farið skynsamlega með almannafé. Tillögur fjárlaganefndar um framlög til húsafriðunar eru enn eitt dæmið þar sem í stað þess að láta faglega nefnd sem þegar er til á vegum ríkisins, húsafriðunarnefnd, sjá um að forgangsraða því brýna verkefni sem friðun og endurbygging gamalla húsa er kjósa fjárlaganefndarmenn að veita fé í fjölmörg gæluverkefni í eigin kjördæmum, alls 26, undir formerkjum húsafriðunar. Meiri hlutinn mokar hreinlega fjármunum í hvers kyns gæluverkefni heima í héraði í stað þess að láta fagstofnanir og fagaðila um úthlutanir og tilheyrandi eftirlit. Þetta er gert á einhverri mestu ögurstundu íslenskra ríkisfjármála þegar á sama tíma er verið að skera niður fé til heilbrigðis-, velferðar- og menntamála.

Úthlutun hundruða milljóna króna til stjórnmálaflokka er enn eitt dæmið um hvernig sitjandi þingmenn reyna að tryggja sér áframhaldandi völd en í fjárlögum næsta árs úthlutar fjórflokkurinn sjálfum sér án umræðu um 304 millj. kr.

Það er mat 3. minni hluta að flestöllum svokölluðum safnliðum beri að fresta. Flestir rúmast nú þegar innan starfssviða ýmissa sjóða og hinum ætti tafarlaust að koma fyrir annaðhvort innan ráðuneytanna eða nýrra sjóða, t.d. svæðisbundinna, sem gætu lagt faglegt mat á umsóknirnar og fylgt því eftir að fjármununum væri varið í þau verkefni sem ætlast er til.

Þriðji minni hluti vekur athygli á nýju atriði sem kom inn í fjárlögin núna milli 2. og 3. umr. en það er að á grundvelli laga nr. 97/2010 verða stofnuð tvö hlutafélög um fyrirhugaðar vegaframkvæmdir. Annað þeirra mun reka Suðurlandsveg og Vesturlandsveg og verða alfarið í eigu ríkissjóðs. Hitt mun reka Vaðlaheiðargöng og vera að hálfu í eigu ríkissjóðs og að hálfu í eigu heimamanna. Gert er ráð fyrir að ríkissjóður taki lán á markaði og endurláni hlutafélögunum til að þau geti fjármagnað vegaframkvæmdirnar. Er hér um mikla breytingu að ræða frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir því að nú er framkvæmdin komin í hendur ríkisins en átti áður að vera utan þeirra. 3. minni hluti telur að svo miklar breytingar hafi orðið á málinu öllu að ekki séu forsendur til að samþykkja það án þess að vinna það betur innan þingsins.

Viðskiptaáætlanir verkefnisins hafa ekki verið lagðar fram í fjárlaganefnd, væntanlegur fjármögnunarkostnaður hefur ekki verið kynntur fyrir fjárlaganefnd, umferðarspár hafa hvorki verið kynntar fyrir fjárlaganefnd né annað sem skiptir máli við mat á framkvæmdinni. 3. minni hluti telur ámælisvert að reynt sé að keyra jafnstórt mál og hér um ræðir í gegnum fjárlaganefnd á tveimur stuttum kynningarfundum en gert er ráð fyrir að framkvæmdir þessar kosti a.m.k. 40 milljarða kr. Fjárlaganefnd hefur, að mati 3. minni hluta, ekki haft möguleika á að kynna sér málið nægilega vel til að geta afgreitt það núna. Með því að afgreiða það nú er ekki brugðist nægilega við gagnrýni sem Alþingi hefur sætt vegna vinnubragða sem mættu sannarlega vera faglegri.

Þriðji minni hluti gagnrýnir einnig þá óvissu sem enn ríkir um fjárhagsáætlanir Íbúðalánasjóðs en í fjáraukalögum fyrir árið 2010 var ríkissjóði heimilað að veita sjóðnum allt að 33 milljarða kr. framlag til að styrkja eiginfjárstöðu hans og gera honum kleift að mæta afskrift útlána. Ekki hefur enn verið útfært með hvaða hætti fjárstuðningi ríkissjóðs við sjóðinn verður háttað. Málefni Íbúðalánasjóðs eru enn í skoðun og fyrirhuguð er rannsókn á starfsemi hans og því liggur ekki fyrir hvort þörf er á og hvernig þurfi þá að breyta fjárhagsáætlunum sjóðsins frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Því er ljóst að komi til þess að grípa þurfi til frekari aðgerða í málefnum Íbúðalánasjóðs eða breyta lánsfjáráætlunum hans kann að þurfa að leita eftir heimildum til þess í fjáraukalögum fyrir árið 2011. Þriðji minni hluti gagnrýnir þessa óvissu og telur að nægilegur tími hafi ekki gefist til að skýra þessi mál.

Þriðji minni hluti lýsir að lokum undrun sinni á þeim vinnubrögðum sem viðgengist hafa við gerð fjárlaga, hvort sem um er að ræða efnahags- og skattanefnd eða fjárlaganefnd. Viðamiklar breytingar á viðkvæmum tímum eru mjög varasamar og ber ekki að afgreiða með þeim hætti sem gert er í þessum fjárlögum. Sú tilraun sem verið er að gera með að endurskipuleggja heilbrigðiskerfi landsins í gegnum fjárlögin en ekki á faglegum forsendum er beinlínis forkastanleg. Einnig er kollvarpað öllum venjum og hefðum í vegagerð á landinu og almenningur margskattlagður í þágu sömu framkvæmda með því að taka upp vegatolla. Hér er einfaldlega komin í gang, ekki tvísköttun heldur þrísköttun sem er sennilega einsdæmi. Við innflutning í landið eru bílar skattlagðir til vegagerðar, olía og bensín er skattlagt við dælingu á tankana til vegagerðar fyrir almenning í landinu og nú á að skattleggja almenning í þriðja sinn fyrir það að keyra á vegunum sem hann er tvisvar sinnum búinn að borga fyrir. Þetta eru ótrúlegar aðferðir og 3. minni hluti mótmælir svona skattpíningu.

Ekki hafa heldur verið gefnar fullnægjandi skýringar á ríkisábyrgðum þeim sem fjármálaráðuneytið hefur gefið Arion banka og Íslandsbanka og hvergi er getið um í ríkisreikningi, ábyrgðum sem geta numið yfir 140 milljörðum kr. ef þær falla á ríkissjóð. Fyrirkomulag þessara ábyrgða og ferli þeirra í gegnum kerfið virðist mjög svipað því og nefnt var ástarbréfakerfið fyrir hrun þar sem Seðlabanki Íslands sat í lokin uppi með risavaxna skuld sem var svo velt yfir á almenning í landinu. Hér eru fetuð sömu spor inn í algjöra óvissu með hundruð milljarða króna án þess að menn viti um niðurstöðuna. Þetta er stórhættulegt og mun hugsanlega gera það að verkum að þetta lendi á ríkissjóði og almenningi í landinu og virðist sem menn hafi einfaldlega ekkert lært af reynslunni sem hrunið bauð upp á. Svo virðist sem enn sé verið að flytja skuldir bankakerfisins yfir á almenning í gegnum Seðlabankann og fyrirhugaðan Icesave-samning á sama tíma og þúsundir heimila eru við það að leysast upp og verða gjaldþrota.

Stefnumótun ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum eins og hún birtist í fjárlögum ársins 2011 er í molum og hér sannast hið fornkveðna að aldrei hafi þjóð sem lotið hefur tilskipunum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í efnahagsmálum komið undan því öðruvísi en með gríðarlegu tjóni fyrir þorra almennings. Það merkilega er að á Íslandi jafnt og í öðrum löndum hefur heldur aldrei skort stjórnmálamenn til að fylgja stefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Þótt erfitt geti verið að bæta úr því sem komið er mundu tillögur 3. minni hluta um nýja skattstofna gefa öllum hlutaðeigendum nægilegt svigrúm til að undirbúa betur breytingar og hagræðingu í rekstri ríkisins og hafa mun jákvæðari áhrif á almenning og fyrirtæki í landinu en þær fjárlagatillögur sem nú eru fyrirhugaðar. Af nógu er að taka í einstökum málum sem má gagnrýna í fjárlagafrumvarpinu. Það er oft bent á að menn eigi ekki að gagnrýna einstök mál því að það sé svo auðvelt en þegar frumvarpið samanstendur af einstökum málum sem eru nánast öll gagnrýniverð er kannski erfitt að standast freistinguna. Ég mun þó gera það hér í dag. Ég bið þingmenn og almenning einfaldlega að lesa fjárlagafrumvarpið og spyrja svo þingmenn í kjölfarið hvers vegna t.d. milljónir hafi verið settar í kartöflugarð í Ólafsdal.

Ég þakka samstarfið í nefndinni og formanni nefndarinnar, Oddnýju Harðardóttur. Vinnan hefur gengið ágætlega. Menn eru ekki sammála um allt, menn eru alls ekki sammála um heildarstefnumótunina, það er alveg á hreinu, en vinnan hefur gengið vel og samstarfið hefur verið ágætt. Formaður nefndarinnar hefur staðið sig með prýði í þessu máli og ég þakka fyrir það.